157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:28]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og þakka honum fyrir yfirlýstan stuðning við málið. Ég hlakka bara til að fá málið hingað aftur til 2. umræðu og treysti hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að fara vel yfir þetta mál og setja þá einhvern ramma ef þau telja nauðsyn á. Sjálf tel ég það ekki en ég er kona málamiðlana og átta mig á því að stundum þarf málamiðlanir til að koma hlutum í gegn.

Virðulegur forseti. Svo að því sé til haga haldið þá lagði ég þetta mál fyrst fram á mínu öðru þingi, þ.e. á 150. þingi. Nú er 157. þing þannig að þetta er í sjöunda skipti sem þetta mál ratar inn í þingið. Alltaf hef ég fengið býsna jákvæð viðbrögð; allir svona líka jákvæðir. Það er bara gaman að því, en það væri ágætt að ég gæti verið að leggja einhver önnur mál fram á næsta þingi.