kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég vil sömuleiðis þakka hv. þingmanni fyrir þrautseigju og elju í þessu máli. Ég þykist nokkuð viss um það að ef svo ólíklega vill til að þetta mál nái ekki fram að ganga þá munum við fá tækifæri til að ræða það aftur á komandi þingum. Ég skal alveg viðurkenna það, virðulegur forseti, að ég er ekki sérfræðingur í þessu máli en það vakti hins vegar athygli mína þegar ég kom hér og hlustaði á hv. þingmann flytja innblásna ræðu um þetta í enn eitt skiptið. Hvernig er það — ég bara kann þetta ekki — í dag? Hvernig eru lög og reglur varðandi þessi duftker? Eru lög sem skylda ættingja til að grafa viðkomandi? Nú hefur maður séð duftker heima hjá fólki erlendis, alla vega. Hvernig er lagaramminn hér varðandi það? Er fólki skylt að grafa kerin í þar til gerðum svæðum eða er fólki heimilt að fara með þessi duftker og hafa þau heima við?