157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:31]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Svo því sé líka til haga haldið er þetta í áttunda skiptið og það stendur víst fremst í greinargerðinni, ég bara mislas það. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í dag hljóðar 7. gr. svo, með leyfi forseta, ég er að lesa 2. mgr.:

„Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum sem skylt er að varðveita í kirkjugarði eða löggiltum grafreit. Skal grafa kerin niður í grafarstæði eða leggja þau í leiði ef vandamenn … “ Svo er farið inn á dýptina og annað þess háttar.

Svo segir í 2. mgr. aðeins neðar:

„Sýslumaður getur heimilað að ösku verði dreift yfir öræfi eða sjó, enda liggi fyrir ótvíræð ósk hins látna þar að lútandi. Óheimilt er að dreifa ösku á fleiri en einn stað sem og að merkja dreifingarstað. Sömuleiðis er óheimilt að geyma duftker fram að ráðstöfun þess annars staðar en í líkhúsi.“

Það stendur skýrt í lögunum í dag. Þess vegna var ég nú búin að færa rök fyrir því að þessi breytingartillaga hefði alveg gengið með þessu máli, sem við erum víst ekki að fara að greiða atkvæði um á morgun heldur á næsta þingfundi, vegna þess að það fjallaði um vandamál líkhúsanna sem eru yfirfull af líkum og eðli málsins samkvæmt tekur duftker töluvert minna rými heldur en líkkista; þess vegna færi ég rök fyrir því að það mál falli af. En það eru sem sagt mjög stífar reglur um þetta eins og hv. þingmaður heyrir á upplestrinum úr lögunum. Ég get kannski sagt það persónulega vegna þess að frændi minn fórst í fjallgönguslysi fyrir nokkrum áratugum síðan í Nepal og fannst svo fyrir nokkrum árum. Þá fór frændi minn út, sonur hans, til Nepal þar sem líkamsleifarnar voru brenndar og svo kom hann bara heim með duftkerið. Ég hugsaði: Elsku frændi, þú getur þetta ekki, þetta stangast á við lögin, þetta gengur ekki. En hann fór hérna heimsálfa á milli í mörg flug þar sem ekkert mál er að ferðast með duftker því það er bara eðlilegt. Þá var þetta duftker auðvitað á hillunni heima þangað til að við jarðsettum það því að það var enginn hér í einhverju líkhúsi á Íslandi (Forseti hringir.) sem var að velta því fyrir sér hvort við værum að koma með duftker frá Nepal. Það er kannski líka það sem ég er að benda á, að þessar reglur eigi ekki alveg við um alla eða öll tilfelli. En þetta stendur í lögum og þess vegna er nauðsynlegt að breyta þeim.