157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:33]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög greinargóð svör. Hv. þingmaður er mjög vel inni í þessu máli enda ekki fyrsta ródeóið hennar hér. Hvað varðar þessa mismunun sem hv. þingmaður kom inn á er það nú bara þannig að ferðalög hafa aukist og sérstaklega er það orðið þannig að margir Íslendingar eru síðustu árin farnir að dvelja erlendis í heitara loftslagi. Eðli málsins samkvæmt leiðir af því að margir Íslendingar látast erlendis og þá er einmitt þetta, og maður hefur heyrt sögur af því og þekkir dæmi um það, að aðstandendur komi með duftker til landsins algerlega eftirlitslaust. Einhvern veginn hefur enginn yfirsýn yfir það. Af því að hv. þingmaður ræddi hér (Forseti hringir.) um skrána í kirkjugörðunum þá er ekki einu sinni skráning ef einstaklingar og ættingjar (Forseti hringir.) ákveða að taka viðkomandi ker heim. Þetta er því ákveðið misræmi sem ég er að (Forseti hringir.) átta mig á núna, virðulegur forseti, og afsakaðu að ég fór yfir tímann.