kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hélt að hv. þingmaður væri að fara að vísa til viðurnefnis míns hér á þinginu sem þingmanns dauðans, sem talað hefur fyrir þessu máli nú í átta ár og dánaraðstoð álíka lengi. Ég hef tekið að mér að fjalla um þessi mikilvægu mál sem sjaldan er fjallað um hér á þinginu. En það er nákvæmlega þetta sem hv. þingmaður var að átta sig á; það er orðið svo mikið misræmi. Það á bara ekki það sama við alla vegna þess að eðli málsins samkvæmt er auðvitað engin lögga að fylgjast með því hvort einhver mæti með duftker til landsins vegna þess að ættinginn hafði látist erlendis; eðli málsins samkvæmt, enda hvaða máli skiptir það? Ekki einu einasta. En ef viðkomandi lætur lífið hér á Íslandi og ákveður að láta brenna sig ber samkvæmt lögum að geyma duftkerið í líkhúsi og það má ekki dreifa öskunni og grafa, eins og ég las upp hér áðan, þannig að það eru mjög miklar takmarkanir í lögunum. Ég held að allir ættu að sjá að það er engin ástæða til að hafa lögin eins og þau eru í dag.