kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og fyrir almennan stuðning við þetta frelsismál. Ég veit að ég og hv. þingmaður deilum oft skoðunum, erum svolitlir frelsispésar hér á þinginu. Hv. þingmaður sagði einmitt að það væri kannski ekkert mikið fjallað um dauðann hér og ég hef kannski verið þingmaðurinn sem hef tekið það að mér. En það er bara tvennt sem er öruggt í þessu lífi, það er dauðinn og svo eru það skattarnir. Ég er frekar lítið fyrir að tala fyrir sköttum, ég er meira á móti þeim, en ég tala fyrir frelsi í dauðanum og þetta er þannig mál. Rannsóknaþjónusta þingsins vann gott starf fyrir mig á sínum tíma, þegar ég var að undirbúa málið, varðandi það hvernig þessum málum væri háttað á hinum Norðurlöndunum, og ég beini því til nefndarinnar að það er sjálfsagt að óska eftir uppfærslu á því.
Ég vil einnig beina því til nefndarinnar — ég og hv. þingmaður höfum átt mjög gagnleg samtöl um þingstörfin og þingmannamál og breytingartillögur — að ég er á því að þingmenn eigi að geta gert breytingartillögur við frumvörp. Ég held að það sé mjög mikilvægur réttur þingmanna að gera breytingar. Við tókumst aðeins á um það og áttum samtal við lögfræðinga á nefndasviði sem vildu meina að þetta félli ekki að markmiði þess frumvarps sem ráðherrann hafði mælt fyrir. Ég er því ósammála en hef samt ákveðinn skilning á því þegar ekki koma fram röksemdir með því. Ég vil bara hvetja hv. þingmann og þá þingmenn sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd til þess — það munu örugglega koma inn umsagnir með þessu máli og ég skal líka ýta á þá sem ég þekki til og hafa skoðanir á þessu að koma með umsagnir — að leita til ráðuneytisins, þar sem ég veit að sérfræðiþekking er til staðar. Ef einhverjar athugasemdir eru gerðar við þetta þá á ráðuneytið að aðstoða okkur þingmenn, ef við hyggjumst gera breytingar á lögunum. Ég vil bara hvetja til þess — ég hef mikla trú á því (Forseti hringir.) sem hv. formaður þessarar nefndar sagði um að ætla að skila þessu máli inn til 2. umræðu — að vel sé farið yfir það í nefndinni að óska umsagna (Forseti hringir.) og fá þá ráðleggingar ef eitthvað kynni að vera að þessu. En ég tek undir með hv. þingmanni: Ég held að þetta sé ekki svona flókið. Það er ekkert mál að gefa þetta bara frjálst.