157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:51]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu sem hefur það að markmiði að létta á þeim lögum og reglum sem við höfum um dreifingu ösku. Ég kem hingað upp líkt og flokksfélagar mínir í Viðreisn, hv. þm. Pétur Björgvin Sveinsson og María Rut Kristinsdóttir, til að lýsa yfir stuðningi við þetta mál og þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir elju sína við að flytja þetta mál hér á ný, þótt það hafi ekki náð fram að ganga á fyrri þingum. Sömuleiðis vil ég fagna því sérstaklega að hv. þm. Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, hafi fallist á að þetta góða mál fái meðferð í nefndinni og komi hingað til 2. umræðu, að mér skilst þá í fyrsta skipti sem þetta góða þingmál gerir það. Það er ekki langt síðan ég kom hingað upp og lýsti yfir eindregnum stuðningi mínum við annað frelsismál hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur sem einnig snertir dauðann. Líkt og hefur komið fram hér þá vona ég að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir átti sig á því að hún getur alltaf reitt sig á stuðning okkar Viðreisnarfólks þegar kemur að góðum frelsismálum, hvort sem þau snúa að dauðanum eða ekki.

Fyrir mér er þetta afskaplega einfalt mál. Ef það er einlæg ósk þess látna, sem kemur þá fram skriflega, býst ég við, fyrir andlát, að öskunni sé dreift á einhverjum stað með einhverjum hætti og aðstandendur eru tilbúnir að verða við því þá á ríkið auðvitað ekki að koma inn og stoppa það. Síðan sýnist mér á greinargerðinni — áður en ég kynnti mér þetta mál þá var ég ekkert mjög kunnugur því hvernig þessu væri háttað annars staðar, en það kemur ekkert á óvart að sjá í greinargerðinni að við göngum auðvitað miklu lengra en víða á Norðurlöndunum. Það á við í allt of mörgum málum, til að mynda í því hversu oft við látum gamla fólkið okkar endurnýja ökuskírteini. Það eru einmitt tvö þingmál í nefnd sem snúa að því, annars vegar frumvarp sem ég er meðflutningsmaður á og er flutt af hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, hins vegar þingsályktunartillaga sem er flutt af Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, sem ég vona innilega að fái sömu þinglegu meðferð og ég býst við að þetta mál fái í allsherjar- og menntamálanefnd. Já, ég er nú farinn að tala pínu í hringi en ég fór að hugsa um það að við eigum þar mjög oft til að ganga lengra í forræðishyggjunni og að mínu mati svona hálfgerðri frelsissviptingu en nágrannar okkar á Norðurlöndunum eiga til að gera.

Ég styð þetta mál heils hugar og hlakka mikið til að vera á græna takkanum þegar það kemur hingað inn í þingsal til 2. umræðu.