157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.

67. mál
[21:09]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur og hennar meðflutningsmönnum fyrir að koma fram með þessa þingsályktunartillögu og þakka henni fyrir þessa góðu yfirferð. Ég horfi á þetta með mjög svipuðum augum og hv. þingmaður gerir og get tekið undir nánast allt sem fram kom í þessari ræðu, t.d. bara eins og orðræðuna gagnvart landbúnaði og gagnvart bændum sem er til skammar oft í okkar annars ágæta samfélagi.

Það sem mig langaði til að fjalla um í þessu andsvari er kannski það að ég horfi á þetta pínulítið tvískipt eins og kemur fram í greinargerðinni þar sem er verið að tala um að þetta stuðli að fæðuöryggi og efli innlenda matvælaframleiðslu. Ég ætla að fá í mínu fyrra andsvari að einbeita mér að þjóðaröryggismálinu. Ég get vel tekið undir það sem hv. þingmaður segir um það. Kannski því til stuðnings vil ég nefna að ég bíð enn þá eftir að komast í það að spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra, ég er með munnlega fyrirspurn sem bíður, um stöðu sauðfjárræktar á Íslandi. Ég sem sagt horfi á sauðfjárræktina sem mikið þjóðaröryggismál. Það er ein af þessum stóru greinum í matvælaframleiðslu þar sem við erum tiltölulega óháð innflutningi fyrir utan kannski að flytja inn eldsneyti og tæknibúnað fyrir heyskap, en að öðru leyti erum við tiltölulega laus við það. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að er hvort hún og meðflutningsmenn hafi velt fyrir sér að skipta þessu í tvennt og vera með tvær tillögur, annars vegar varðandi það að efla innlenda matvælaframleiðslu og hins vegar þjóðaröryggi. Ástæðan fyrir því að ég spyr er bara vegna þess að við höfum það gríðarlega tækifæri núna, sem ég hef nefnt hér í fleiri en einni ræðu í dag, að vera að fjalla um svo mörg mál sem við getum tengt við þjóðaröryggi. Ég spyr hvort það að vera með þetta í einni þingsályktunartillögu gæti hugsanlega gert það erfiðara. (Forseti hringir.) Ég veit alveg að við getum gert það sem við viljum hér í þinginu, en nú fer tillagan til umfjöllunar í atvinnuveganefnd en það hefði (Forseti hringir.) verið mjög áhugavert að fá svona þjóðaröryggisvinkilinn sérstaklega inn í þetta. — Fyrirgefðu, herra forseti.

(Forseti (IngÞ): Forseti fyrirgefur.)