157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.

67. mál
[21:14]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Þetta var einmitt punkturinn sem ég ætlaði að koma inn á í mínu seinna andsvari. Ég þakka forseta fyrir að nefna þetta því að ég ætlaði einmitt að velta þessu upp, hvort það væri ekki rétt að við beindum því til atvinnuveganefndar þegar hún fær þetta inn til sín að það þurfi ekki að koma með neitt nýtt mál en að hægt sé að vinna þetta bara; að beina því frekar til atvinnuveganefndar að óska eftir einhverri umfjöllun eða einhvers konar samtali við allsherjar- og menntamálanefnd vegna þjóðaröryggismála eða bara vegna fæðuöryggisins. Ég veit að utanríkismálanefnd hefur fjallað um þjóðaröryggismálin eða þjóðaröryggisstefnu á sínum tíma, held ég. Þetta er klárlega innanlandsmál og þar af leiðandi ættum við að horfa á þetta svona á svipuðum stað og almannavarnir, kannski eitthvað slíkt.

Ég þakka því herra forseta aftur fyrir þetta og það er í sjálfu sér ekki nein stór spurning nema bara hvort þetta gæti verið leiðin, að hægt væri að beina kannski 1., 3. og 4. tölulið tillögunnar til skoðunar allsherjar- og menntamálanefndar.