fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.
Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir andsvarið. Hann er alla daga með frábærar tillögur, heyrist mér. Ef það er því hægt að beina því til hv. formanns atvinnuveganefndar, sem er reyndar ekki staddur hérna í salnum, þegar þessi tillaga kemur, væntanlega þangað, til umfjöllunar, að hluti tillögunnar, þ.e. hvað varðar fæðuöryggið, og jafnvel fleiri liðir fari til umsagnar til þeirrar nefndar sem hv. þm. Víðir Reynisson veitir formennsku, þ.e. allsherjar- og menntamálanefndar. Ég held að það sé bara mjög gott. Það er einmitt eitthvað sem ég hefði viljað sjá einnig varðandi tillögur sem ég kynnti hérna um daginn um heildstæða stefnu í öryggis- og varnarmálum sem byggi á þjóðaröryggisstefnunni. Ég hefði einnig viljað sjá hana fara til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd.