157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.

67. mál
[21:26]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Davíðsdóttir) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alltaf jafn gaman að koma upp í ræðustól eftir Ólafi Adolfssyni og þurfa að lækka púltið um heilan helling. Hv. þingmaður talaði um lið 2, þar sem hann vildi bæta inn orðinu hagfellt. Ég sé enga fyrirstöðu fyrir því að gera slíkt.

Varðandi aðföngin sem hann nefnir þá er ég að tala um að við þurfum að auka t.d. kornrækt, það þarf korn í alls konar hluti. Hér er verið að flytja inn fullt af fóðri fyrir fiskeldi. Við eigum að geta framleitt það hér. Við munum alltaf þurfa að flytja inn olíu, held ég, nema við förum að vinna olíu einhvers staðar en það eru ákveðnir hlutir sem við eigum að geta framleitt hérna á Íslandi, bara ef við búum til plan til að gera það, við eigum að auka í það plan. Ég veit að það er búið að vera markvisst að auka kornframleiðslu. Þar getum við hins vegar, held ég, gert betur og við eigum að gera betur.

Varðandi rekjanleikann þá myndi ég segja að þetta snýst í raun og veru um neytendavernd. Þegar ég sem neytandi fer út í búð vil ég geta lesið hvaðan viðkomandi vara kemur, hvernig hún var framleidd. Hefur hún verið fryst, hefur hún verið þídd? Hvaða sýklalyf eru í henni? Ef þetta er sláturvara, hvenær var dýrinu slátrað? Í gegnum hvers lags ferli hefur varan farið? Þingmaðurinn spyr hvort þetta sé tæknileg hindrun. Nei, alls ekki. Þetta á í raun að vera hluti af neytendavernd.