fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og ég held að við séum nú eiginlega alveg á sama stað. Ég er algerlega sammála því að við eigum auðvitað að reyna sem mest að vera sjálfum okkur nóg, þar með talið t.d. varðandi fóður. Eftir því sem við verðum meiri framleiðendur á hinu ýmsa, ég nefni kannski fiskeldið, þá er alveg ljóst að það falla til dýrahlutir og annað sem væri hægt að nýta í fóður. Varðandi eftirlitskerfið sýnist mér þetta vera svo mikið umleikis að það gæti orðið dýrt, ég velti því fyrir mér. Svo langar mig til þess að nefna það sem kemur hér í 6. lið: „Einfalda eftirlitskerfi matvælaframleiðslu, það gert skilvirkara og kostnaði við eftirlit létt af greininni.“ Hver á að bera þennan kostnað?