157. löggjafarþing — 39. fundur, 2. des. 2025.
breyting á starfsáætlun.
Forseti hefur í samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka ákveðið að gera breytingar á starfsáætlun. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er föstudagurinn 5. desember nefndadagur. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hafa þingfund þennan dag og mun hann hefjast kl. 10:30. Einnig var samþykkt að laugardagarnir 6. og 13. desember yrðu þingdagar en það mun skýrast betur þegar nær dregur hvort þeir verði nýttir sem þingfundadagar eða nefndadagar.