reglugerð um línuívilnun.
Frú forseti. Ég er í nokkrum vanda. Ég stóð í þeirri meiningu að hæstv. innviðaráðherra yrði ekki til staðar hér í dag. Ég hefði svo gjarnan viljað beina þessari fyrirspurn að honum. (Innvrh.: Ég er hérna.) Já, ég sé það, en ég vissi ekki betur en að þú hefðir boðað forföll. Ja, við skulum alla vega hafa það þá þannig, frú forseti, með leyfi, að ég fái að ávarpa hæstv. innviðaráðherra. (Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Bara svo forseti skilji: Er fyrirspurninni beint til hæstv. innviðaráðherra?)
Hárrétt. (Atvvrh.: Jæja, góði. [Hlátur í þingsal.]) Ég vona, frú forseti, að hæstv. atvinnuvegaráðherra verði nú ekki móðguð að þessu sinni. Mig langar til að eiga orðastað við hæstv. innviðaráðherra vegna reglugerðar sem hann setti hér á föstudaginn, sem er, svo því sé haldið til haga, þremur mánuðum síðar en reglugerðin hefði átt að vera komin fram, því að sjálfsögðu hefði reglugerð um ráðstöfun á 5,3% pottinum átt að vera komin fram áður en fiskveiðitímabilið hófst, sem var 1. september. Innviðaráðherra útskýrir kannski fyrir okkur hvernig þessi seinagangur hans hjálpar þessum fyrirtækjum sem reiða sig á upplýsingar og veiðiheimildir úr þessum potti, hvernig þetta þjónar þessum fyrirtækjum a.m.k. hvað varðar fyrirsjáanleika. En nú er það ljóst að stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur lýst yfir hættuástandi í atvinnumálum á Vestfjörðum vegna skerðingar línuívilnunar rækjubáta og byggðakvóta, aðgerða sem hæstv. innviðaráðherra réðist í fyrir helgina, eins og ég sagði hér. Þetta mun hafa í för með sér að heilsársútgerð í vinnslu í smærri sjávarbyggðum á Vestfjörðum leggst mögulega af, en um er að ræða á annað hundrað starfa sem eru í hættu í brothættum byggðum á borð við Drangsnes, Flateyri, Hólmavík, Suðureyri og fleiri. Nú langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra, af því að það kemur í rauninni ekki fram — það kemur reyndar fram að þarna er um að ræða skerðingu en ráðherra hefur ekki sýnt á spilin hvað hann ætlar að gera við þessar aflaheimildir sem hann er að taka úr línuívilnun, rækju- og skelbótum og byggðakvóta. Í hvað ætlar ráðherrann að ráðstafa þessu?