157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

reglugerð um línuívilnun.

[13:42]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og heiðurinn að henni skyldi vera beint til mín. [Hlátur í þingsal.] Varðandi spurningu hv. þingmanns þá erum við að taka til í byggðakerfinu vegna þess að þetta gamla kerfi hefur einfaldlega ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með, samkvæmt stjórnsýsluúttektum. Ég bendi t.d. á skýrslu Ríkisendurskoðunar, skýrsluna Auðlindin okkar frá 2023 og skýrslu frá Háskólanum á Akureyri sem sýna að byggðakerfið hefur ekki verið að þjóna sínum tilgangi. Þetta byggðakerfi var flutt til mín núna í sumar og við höfum verið að vinna að heildarendurskoðun á þessu kerfi. Reglugerðin markar upphafið að breytingum sem við ætlum að fara í. Við erum einfaldlega að taka til í þessu kerfi og við ætlum að koma með frumvarp til laga um strandveiðar og svo frumvarp á næsta ári fyrir næsta þing, um byggðakvóta, svo það liggi algjörlega fyrir. Við erum vissulega að skera niður í línuívilnun og líka í rækju og skel og þá minni ég bara á niðurstöðukaflann í skýrslunni Auðlindin okkar, hvað lagt er þar til. Við erum líka að skera niður í almenna byggðakvótakerfinu. Ég get bara vitnað hérna í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þar segir að almenna kerfið hafi raunar dagað uppi með nánast algerri stöðnun. Það er það sem við erum að horfa á, svo það liggi algerlega fyrir. Svipað er að segja um kerfið í skýrslunni Auðlindin okkar.

Ég sé fyrir mér einfaldara kerfi sem byggir á strandveiðum, með byggðafestu, með jákvæðum byggðaáhrifum og byggðakvótakerfi sem tryggir hinar veiku byggðir í landinu. Af hverju erum við með 5,3% kerfi? Þetta er byggðakerfi og ég tel að það eigi að vera fyrir hinar smærri sjávarútvegsbyggðir sem hafa farið illa út úr núverandi fiskveiðistjórnarkerfi. Þess vegna erum við með eitt lítið kerfi, sem er 5,3% kerfi, og svo þetta stóra kerfi. Hluti af þessum afla mun vissulega fara í strandveiðar (Forseti hringir.) og svo erum við líka með mótvægisaðgerðir til að koma til móts við þær byggðir sem verða illa úti úr þessum skerðingum sem eru núna. Við munum líka vera með nánari (Forseti hringir.) útfærslu í reglugerðum sem koma vonandi út í lok vikunnar.