reglugerð um línuívilnun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin en ég held að hann átti sig fullkomlega á því að hann er í mótsögn við sjálfan sig. Hann er að lýsa því hér yfir að byggðakerfið hafi ekki þjónað sínum tilgangi. Þarna eru útgerðir og bæjarfélög sem eru með neyðarhróp til ráðherrans og eru í raun að benda ráðherranum á það að þetta gengur bara giska vel hjá þeim. Ráðherra er að taka aflaheimildir af þessum útgerðum og færa þær yfir í strandveiðarnar. Og hvað hafa strandveiðarnar verið? Hafa þær verið burðarás og skapað heilsársstörf í þessum bæjarfélögum? Trúir ráðherrann því? Það hefur að sjálfsögðu ekki verið þannig. Að ætla að skipta út heilsársstörfum fyrir sumarveiðar — ráðherrann veit að það er ekki skynsamlegt. Ég vona svo sannarlega að þær breytingar sem hann ætlar að gera muni miða að því að þessar byggðir muni búa áfram við heilsársstörf í útgerð og fiskvinnslu.