157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

reglugerð um línuívilnun.

[13:46]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Það sem við erum einfaldlega að gera hér er að fara í heildarendurskoðun á þessu kerfi sem hefur ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með. Það er grundvallaratriði. Ég skora á hv. þingmann að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar (ÓA: Búinn að því. )frá júní 2024 sem ég las upp úr hér áðan þar sem almenna byggðakvótakerfið birtist í algerri stöðnun. Flækjustigið er hreinlega með algerum ólíkindum, algerlega með hreinum ólíkindum. Við ætlum að einfalda kerfið og varðandi línuívilnun er t.d. í Auðlindinni okkar lagt til að við munum sennilega vera með eins konar vinnsluívilnun. Við getum ekki haldið landsbyggðinni í fátæktarfjötrum með gamlar vinnsluaðferðir. Þar er raunverulega verið að gefa ívilnun upp á 20%. Það verður að horfa á þetta sem algera heild. Við erum byrjuð á því með reglugerðarbreytingunni. Svo kemur frumvarp til laga um strandveiðar og þar verður vissulega að hluta til breytt kerfi. Við gerum ráð fyrir jákvæðum byggðaáhrifum þar. Síðan ætlum við að koma með byggðakvótakerfi þannig að þetta verður að tala saman yfir 12 mánaða tímabil. Vissulega eru strandveiðarnar fjórir mánuðir en svo eru hinir átta mánuðirnir (Forseti hringir.) sem snúa að byggðakerfinu auk strandveiðanna með þessa fjóra. Ég bara skora á hv. þingmann og þingheim allan að vera með okkur í þessari vegferð. (Forseti hringir.) Ég tel að sátt í stóra kerfinu gæti skapað sátt við hinar veiku byggðir í landinu sem hafa farið illa út úr núverandi fiskveiðistjórnarkerfi.

(Forseti (ÞSv): Forseti vekur athygli á því að ræðutími við annað svar er ein mínúta.)