157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

markmið um hallalaus fjárlög 2027.

[13:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ljómandi góða spurningu. Nú vil ég taka fram að ákvæðið um varasjóð kveður á um ákveðið hlutfall og allt tal um hámörk og lágmörk í því samhengi er þess vegna eitthvað sem við ákveðum bara sjálf að þýði eitthvað. Það er raunverulega bara viðmið um ákveðinn varasjóð og það viðmið stendur. Þetta var sett inn í lög um opinber fjármál til þess einmitt að taka tillit til óvissra atriða sem við eðli málsins samkvæmt vitum ekki hver eru. Nú vil ég líka taka fram að afkoma ríkissjóðs er meira háð þróun einkaneyslu og þróun launa heldur en sveiflum í atvinnuvegunum og það er þess vegna, eins og hv. þingmaður glögglega veit, minni breyting á afkomuspá fyrir ríkissjóð fyrir næsta ár en gera hefði mátt ráð fyrir á grundvelli þeirra áfalla sem riðið hafa yfir. Það er einfaldlega vegna þess að afkoma ríkisins er meira háð afkomu heimila og þróun einkaneyslu heldur en þróuninni í raunhagkerfinu. Það er í sjálfu sér vel vegna þess að það gerir að verkum að við getum betur treyst þeirri spá sem fyrir liggur.

Hv. þingmaður spyr hvort ég telji raunhæft að fjárlög ársins 2027 verði hallalaus. Þá vil ég benda hv. þingmanni á að sú fjármálaáætlun sem ég lagði fram fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í vor gerði ráð fyrir 25 milljarða halla á þessu ári. Síðan varð afkoman heldur betri en við gerðum ráð fyrir og við gerðum ráð fyrir 15 milljarða halla í þeim fjárlögum sem ég mælti fyrir núna í haust. Nú hafa horfurnar aftur versnað og þá erum við komin aftur á þá áætlun sem lögð var fram í vor.