157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

markmið um hallalaus fjárlög 2027.

[13:52]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Það er ágætt að við séum komin að sömu niðurstöðu og við lögðum fram í vor sem þó er byggð á gjörbreyttum forsendum. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en þetta eru auðvitað afar þröngar forsendur sem þurfa að ganga upp til að allt gangi eftir. Varasjóðir hafa í rauninni lágmark, jú, það er viss prósenta en það er kannski ósköp eðlilegt að reyna að leggja í hann, sérstaklega þegar við sjáum að það geta komið eldgos hvenær sem er. Ef hallinn hins vegar tvöfaldast á nokkrum vikum, er þá ekki alveg hægt að segja það að við séum að sigla jafnvel inn í árið 2026 án nokkurs öryggisnets þegar búið er að skerða alla varasjóði?

Mig langaði aðeins að spyrja út í hagræðingaraðgerðir. Hér var kallað eftir hugmyndum frá þjóðinni, blásið í lúðra og kallað eftir alls konar hugmyndum um hvar væri hægt að skera niður í þjóðarbúinu. Þessar hagræðingaraðgerðir eiga að styðja við forsendur fjárlaga og enn liggur ekkert fyrir, ekki svo ég finni alla vega, hvar þessar aðgerðir lenda, hvenær þær taka gildi (Forseti hringir.) og hvenær þær verða útfærðar innan ráðuneytanna. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær getum við séð útfærðar hagræðingartillögur ráðuneytanna? (Forseti hringir.) Hvar í gögnum fjárlagafrumvarpsins er hægt að finna þessar aðgerðir skýrt, sem eiga einmitt að vega upp á móti halla og óvissu í forsendum?

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir enn og aftur á ræðutímann.)