157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

áhrif skattkerfisbreytinga.

[13:59]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég segi bara: Jesús Kristur. [Hlátur í þingsal.] Fasteignamat er sett á með lögum til þess að finna raunverð fasteigna og ríkið setur það og nú kemur hæstv. fjármálaráðherra og segir að það sé ónothæft. (Fjmrh.: Ég sagði ekkert slíkt … )Þetta er faglegasta og skýrasta matið. Hér talar hæstv. ráðherra um að hann sé að einfalda lögin. Allar umsagnir sem koma um þetta mál, fyrir utan frá Skattinum sjálfum, segja að hér sé verið að flækja kerfið, það sé algjörlega óljóst hvað sé átt við. Það er hvergi í þessu frumvarpi skilgreint hvað land er. Það segja líka umsagnir að hér sé verið að hækka verulega erfðafjárskatt á landi sem er ekki skilgreint í frumvarpinu. Fasteignamat hefur það hlutverk samkvæmt lögum sem við setjum hér á Alþingi að finna út rétt mat á fasteignum. Það er lögbundið hlutverk fasteignamats.