áhrif skattkerfisbreytinga.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir spurninguna en verð að viðurkenna að ég kem hér upp hlaðinn nokkrum vonbrigðum og get með engu móti skilið hvernig hv. þingmaður gat misskilið mig. Ég sagði ekki nokkurn skapaðan hlut um það að fasteignamat væri ónothæft. Þvert á móti sagði ég að það byggði á markaðsverði. Ég veit ekki hvað í ósköpunum hv. þingmaður er eiginlega að fara. Mér er þess vegna nokkur vandi á höndum að svara spurningu sem fyrst gefur sér svar sem ég veitti ekki og er þar af leiðandi áframhald á skáldsögu sem hv. þingmaður samdi hér í öðru andsvari sínu sem ég hef náttúrlega ekki hugmynd um hvernig hann hefur hugsað sér að ljúka en fel honum það sjálfum.