hækkun skatta.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir afar hnitmiðaða spurningu sem mig langar til að svara í nokkrum liðum. Í fyrsta lagi var það auðvitað ekki þannig að lofað væri engum breytingum á tekjum ríkisins. Það hafði bæði verið í stefnu Samfylkingarinnar og Viðreisnar um allnokkurt skeið að gera breytingar á gjaldtöku vegna nýtingar á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar, það fer nærri að það séu um 7,5 milljarður sem gert var ráð fyrir í áætlunum sem hv. þingmaður vísar til. Síðan eru um 11 milljarðar sem höfðu þegar verið boðaðir og eru breytingar á gjaldtöku af ökutækjum og eru hluti af því markmiði sem hafði verið sett í fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar og er í sjálfu sér full samstaða um að nauðsynlegt er að styrkja grunntekjur af umferð og samgöngum til að vinna á þeirri gríðarlegu innviðaskuld sem byggst hefur upp. Það er ánægjulegt að segja frá því að ég hygg að á morgun muni hæstv. innviðaráðherra kynna fullfjármagnaða samgönguáætlun sem óraunhæft hefði verið að ráðast í nema væri fyrir þessa samstöðu sem er þá a.m.k. milli ríkisstjórnarflokkanna og fyrri ríkisstjórnarflokka. Aðrar breytingar eru í sjálfu sér eðlilegur hluti af því sem gerist ár frá ári og snúa fyrst og fremst að því að einfalda kerfi. Ég hef rætt það hér áður og ég held að það hljóti að vera fleiri hér úti í salnum sem taka undir með mér þegar ég segi að Ísland getur stærðar sinnar vegna ekki búið við mjög flókin kerfi. Flókin kerfi krefjast mikils eftirlits, eru flókin í framkvæmd og við erum fá.