157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:16]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Forseti. Það eru margir þingfundadagar eftir. Ég var að svara orðum hv. þingmanns sem kom hérna og lýsti því yfir að útlendingafrumvörp yrðu ekki afgreidd. Mitt svar er einfaldlega þetta: Það liggur ekkert fyrir um að þau verði ekki afgreidd. Það er stefnt að afgreiðslu. Það liggur fyrir að dagsetningarmál eru í forgangi og það er bara hefðbundið verklag á Alþingi hvað það varðar, en það var ekkert tilefni til þeirra orða þingmannsins að útlendingafrumvörp yrðu ekki afgreidd. Það er einfaldlega ekki rétt hjá hv. þingmanni. (Gripið fram í.) Ég varð að leiðrétta þau orð hans. Það er engin ástæða fyrir hann að þurfa að bera af sér sakir þegar ég er einfaldlega að svara spurningum hans um hver staða málanna er.