157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:17]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég vil bara stuttlega lýsa því yfir að Miðflokkurinn mun gera allt sem hann getur til þess að liðka fyrir frumvörpum hæstv. dómsmálaráðherra hvað þessi mál varðar. Ef það finnst einhver tími hér og hægt er að hliðra eitthvað til á þinginu þá mun Miðflokkurinn ekki standa í vegi fyrir því heldur greiða götu þess.