afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.
Frú forseti. Það er áhugavert að fylgjast með þessari umræðu. Ég held að menn séu svolítið fastir í misskilningi frá því í síðustu viku og aftur frá því núna á fundi í gær. Það hefur alveg legið fyrir að það eru ekkert rosalega margir dagar eftir. Það hefur verið algerlega skýrt á öllum fundum og í öllu sem rætt hefur verið um að eðli málsins samkvæmt eru það dagsetningarmálin, fjárlagatengdu málin og það sem þarf nauðsynlega að klára fyrir áramót sem verður í forgangi. Það er hins vegar ekkert útilokað að eitthvað fleira verði klárað ef tími gefst til með það. Þetta er búið að vera alveg skýrt og ég held að það sé reyndar margítrekað búið að leiðrétta þetta. Þegar er verið að dreifa lista þá er það listi yfir mál sem þurfa að klárast út af dagsetningum eða öðrum viðkvæmum hlutum, t.d. fjárlagatengd mál. Verði pláss fyrir eitthvað fleira þá auðvitað höldum við áfram að vinna hér á Alþingi Íslendinga.