157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:20]
Horfa

Snorri Másson (M):

Herra forseti. Ég tek undir þetta, það mun ekki standa á Miðflokknum í neinu tilliti að koma t.d. frumvarpi um afturköllun alþjóðlegrar verndar, sem hefur verið rætt býsna ítarlega fyrir nefndinni og væri vel hægt að koma með inn í þingið, og afgreiða með hraði ef vilji væri fyrir því. Ég minni á að í vor þurfti atbeina Miðflokksins til að koma útlendingamálum hæstv. dómsmálaráðherra á dagskrá, þannig að það mun síst standa á okkur. Við höfum verið með dagskrártillögur þess efnis, gætum komið með aðrar. Ef það er hins vegar ekki samhljómur innan ríkisstjórnar um að koma þessum málum á dagskrá þá er ekki mikið sem við getum gert. Þá þarf ríkisstjórnin bara að sýna á spilin og setja mál á dagskrá. Það mun gleðja okkur og við munum taka fullan þátt í því. Hitt er að það eru líklega annasamir dagar fram undan í desember og ekki á dagskrá neins að fara í lága drifið eins og hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar óttast, en þarf ekki að óttast.