afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.
Frú forseti. Mér finnst þetta ágætisumræða og að einhverju marki broslegt að þingmenn Miðflokksins þurfi að koma hér upp einn af öðrum til að lýsa því sérstaklega yfir að þeir ætli að styðja einstaka útlendingafrumvarp. Það er gott og ég fagna því. Ég minni á að það er 2. desember og það er býsna langt í jólin og auðvitað vinnum við desember út og reynum að afgreiða þau mál. Ég er sammála hv. þingmanni þegar hann segir að þetta tiltekna frumvarp hefur fengið býsna góða vinnu og umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd, var eitt þeirra frumvarpa sem ekki kláruðust síðasta vor. Við vitum auðvitað öll hverjar ástæðurnar voru, það var Íslandsmet í málþófi [Framíköll í þingsal.] sem gerði það að verkum að mörg brýn mál fóru upp fyrir. En ég vildi bara aðeins nefna það af því að mér fannst sérstakt að hlusta á það hér að þingmenn tali um löggjafarþing Íslendinga sem málstofu. Við afgreiðum lög hér á Alþingi Íslendinga og við ætlum að gera það lengra inn í desember en annan dag mánaðarins.