157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:23]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Það fer nú að verða regla frekar en undantekning hér í þessum sal að hæstv. dómsmálaráðherra falli í einhvern skæting í þeirri von að, ég veit ekki, sækja einhver stig og sækja þau þá líklega til Miðflokksins. Henni lukkaðist þó í þessari uppkomu sinni hingað í stólinn að koma með eina fullyrðingu skætingslaust sem ég var sammála: Það er 2. desember. Við vorum sammála um það. Það kom alveg skætingslaust. Að öðru leyti þykir mér, frú forseti, þessi framkoma og þetta yfirlæti ráðherra hér, að svara einföldum spurningum, ekki vera til fyrirmyndar og tek að sjálfsögðu undir með forseta að það er forseti sem er með dagskrárvaldið.