afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.
Virðulegi forseti. Það er áhugavert að hlusta á þessar umræður. Ég held hins vegar, út af orðum hæstv. dómsmálaráðherra, að það sé mjög mikilvægt að það komi fram að það er forseti sem setur hlutina á dagskrá en ríkisstjórnin forgangsraðar. Ríkisstjórnin forgangsraðaði með þeim hætti síðasta sumar að mýmörg mál sem góð samstaða var um voru ekki sett í röðina. Það var ákvörðun ríkisstjórnarinnar að frumvörpin, sem þau segja núna að stjórnarandstaðan hafi stöðvað, voru ekki kláruð. Ríkisstjórnin vissi, og öll þjóðin vissi, að ef þau mál hefðu verið tekin fyrir þá hefðu þau verið kláruð. (Forseti hringir.) Það er mjög mikilvægt að allir séu meðvitaðir um þetta.