157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:25]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Þetta er áhugaverð umræða og sérstaklega finnast mér áhugaverð orð um að hæstv. dómsmálaráðherra sé með skæting, komandi í kjölfar ræðu sem var einn lengsti samfelldasti skætingur sem hér hefur heyrst í alllanga tíð. Eigum við ekki öll aðeins að reyna að hefja okkur upp yfir þetta? Við vitum alveg hvað er í gangi hérna, það eru þingfundadagar eftir og nefndadagar. Það er búið að bæta við tveimur dögum eins og tilkynnt var um hérna áðan. Við reynum að vinna þétt og örugglega og það verða örugglega lengri þingfundir heldur en oft. Það eru ákveðin mál í forgangi, eins og margoft hefur verið sagt, en önnur komast mögulega á dagskrá ef þarf og ef hægt er. Þetta er ekkert flóknara en þetta.

Ég segi aftur: Að vera að tala um einhvern skæting þegar verið er að reyna að útskýra þessa hluti, sem við þó ættum öll að vita, finnst mér ekki í lagi og ég held að við ættum að reyna að hefja okkur aðeins upp úr þessum skotgröfum vegna þess að ef við viljum koma fleiri málum á dagskrá þá dugir ekkert sérstaklega vel að eyða deginum í fundarstjórn.