157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:26]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Varðandi forgangsröðun ríkisstjórnarinnar hér fyrir áramótin er einmitt ekki úr vegi að benda á mikilvægi forgangsröðunar. Það hefur verið sá vani hér að klára viss dagsetningarmál. Skilgreiningar á þeim geta verið mismunandi en mig langar samt að vekja athygli á því að í gær var einmitt máli dreift frá félagsmálaráðherra 1. desember sem á að taka gildi 1. janúar 2006, sem sagt innan mánaðar. Það er ekki búið að mæla fyrir málinu, það fór ekki í samráðsgátt og það á að klára það núna á þessu þingi fyrir jól. Ég bara velti fyrir mér vinnubrögðunum og vandaðri stjórnsýslu í kringum þetta. Síðan hefur samgönguáætlun líka komið til tals hér, mjög mikilvægt skjal sem mér skilst að hæstv. ríkisstjórn ætli líka að ná að mæla fyrir núna fyrir jólin, fyrir þinglok, til að fá inn umsagnir, sem eru mjög mikilvægar, frá sveitarfélögunum. Hins vegar hefur samgönguáætlun ekki farið í samráðsgátt (Forseti hringir.) og þetta er fyrsta samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Hún fer ekki í samráðsgátt og það á mæla fyrir henni svo hún komist í umsagnarferli. (Forseti hringir.)

Ég hvet okkur til að gera betur, frú forseti.