157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:28]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vildi bara þakka hæstv. forseta fyrir góða fundarstjórn þennan þingveturinn. Hér hefur nú bara allt gengið mjög greitt fyrir sig, það hafa ekki verið miklar tafir, mál komist vel á dagskrá. En ég finn líka að hluta til til með hæstv. forseta vegna þess hvað ríkisstjórnin kemur seint með málin, það gerir hlutverk forseta erfitt þegar málin koma seint og illa frá ríkisstjórninni. Það var rætt fyrr í dag hvað t.d. skattbreytingar og ýmsar tillögur varðandi fjárlögin og tengd mál hafa komið seint. Ég vil líka benda á það, þar sem þessi umræða hófst um útlendingalög, að hæstv. dómsmálaráðherra var með tilbúin fullt af málum á sínu borði þegar hún kom þar inn fyrir ári síðan og ef það er svona mikill vilji og samtakamáttur hjá hæstv. ríkisstjórn til að klára þau mál, sem ég vona að sé, þá hefði henni nú verið í lófa lagið að koma fyrr með þau inn þannig að þau væru búin hér í umræðu, en ekki að fara að kenna einhverjum öðrum um að svo hafi ekki verið.