157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:29]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þakkir hv. þm. Vilhjálms Árnasonar til forseta fyrir farsæla fundarstjórn á þessu þingi. Það má hins vegar segja, þó að ég sé ekkert að gera lítið úr góðri fundarstjórn, alls ekki, að það hefur ekki verið mikið að gerast vegna þess að verkstjórnin hefur ekkert sýnt á nein verk. Það er ekki bara í dómsmálaráðuneytinu, það er í fleiri ráðuneytum sem eru mál sem ríkisstjórnin segist leggja áherslu á en við höfum bara ekkert séð hér í þinginu. Hv. þm. Ingibjörg Isaksen fór yfir eitt mál en stóra einstaka málið er að málin hafa ekki komið fram.

Virðulegi forseti. Núna er 2. desember — og ég má aldrei gleyma þeim degi af persónulegum ástæðum — og við erum bara að sjá gríðarlegan hægagang hjá þessari ríkisstjórn. Augljóslega hafa þau annaðhvort farið í mikla afslöppun eða það er ekki mikil samstaða.