samskipti ráðherra í ríkisstjórn við embættismenn.
Frú forseti. Ég ítreka það sem áður var sagt: Það er ekkert óeðlilegt við að auglýsa stöður þegar skipunartíma lýkur. Ég hef ekki fengið aðrar upplýsingar en að um faglega niðurstöðu sé að ræða. Ég get alveg sýnt því skilning á persónulegum nótum að fólk geti orðið fyrir vonbrigðum en ég get ekki úttalað mig um ásýnd og að grípa inn í vegna ásýndar. Annaðhvort eru hlutir gerðir á faglegum forsendum eða ekki og allar þær upplýsingar sem ég hef fengið segja að þetta sé gert á faglegum forsendum og sé vel ígrundað. Ég ætla ekki að tjá mig sérstaklega um hvort það sé rugl í gangi í menntamálaráðuneytinu. Ég ber fullt traust til mennta- og barnamálaráðuneytisins og hæstv. ráðherra. (Forseti hringir.) Þetta mál hefur ekkert að gera með hvað er í gangi í ráðuneytinu. Þetta er faglega ákvarðað. Verið er að grípa til mjög stórra og áhugaverðra breytinga (Forseti hringir.) á framhaldsskólakerfinu núna og ég veit ekki betur en að hæstv. ráðherra hafi heimsótt alla framhaldsskóla landsins á síðustu vikum (Forseti hringir.) til þess m.a. að tala við um fólk um þær breytingar.