157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:41]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða fyrstu fjárlög sem eru alfarið þessarar ríkisstjórnar. Það verður ekki annað sagt en að á vissum sviðum valdi þessi fjárlög, og sú nálgun sem þar er leiðarljósið, vonbrigðum. Í stað þess að fara í það aðhald sem þarf að fara í á vegum ríkissjóðs, og í stað þess að ná þessu jafnvægi sem æskilegt er að leggja alla áherslu á, þá er farið í meiri háttar útgjaldaaukningu, 9% útgjaldaaukningu í 4% verðbólgu upp á einhverja 143 milljarða. Á sama tíma er reynt að gera það mál skárra með skattahækkunum á almenning og fyrirtæki upp á 25–30 milljarða. Það er hægt að fara hér að hluta til yfir þær skattahækkanir ef við erum að draga upp þessa breiðu mynd en ég held að það sé mikilvægt að átta sig á því að nú erum við í viðkvæmri stöðu í efnahagsmálum á ýmsum sviðum. Það eru blikur á lofti í atvinnulífi. Það er mjög mikilvægt að stjórnvöld haldi þannig á málum að bærilega mjúk lending náist á sem flestum sviðum. Þar höfum við mótmælt þeirri nálgun að fara fram með meiri háttar skattahækkanir gegn t.d. fyrirtækjum, auðvitað fer ég betur út í það sem gert er gagnvart almenningi líka. En það er ekki án afleiðinga hvernig stjórnvöld haga þessum málum og nálgunin er ekki til þess fallin að tryggja þessa mjúku lendingu almennt.

Verðbólgan er seigfljótandi. Þótt lækkun mælist nú þá er það skýrt með vísan til útsölu og þess vegna megum við ekki fagna því of snemma að árangur sé að nást þar. Það er þó auðvitað árangur að verðbólgan fari niður þrátt fyrir allt, þótt hún hafi gert það mun hægar en vonir hafa staðið til, og spárnar bregðast iðulega. Þótt þær séu kannski jákvæðar frá ári til árs, um að eitthvað muni gerast á x löngu tímabili, þá hefur mynstrið um hvernig málin muni þróast í raun og veru ekki verið framar vonum, heldur hið gagnstæða. Vextirnir eru sömuleiðis lækkaðir og maður varar við þessari umræðu, sérstaklega um fjárlög, að láta eins og björninn sé unninn þegar við fáum vaxtalækkun, sem er skýrð með mjög sértækum aðstæðum sem tengjast ekki efnahagsþróuninni almennt heldur sértækum aðstæðum sem myndast í kjölfar dóms sem fellur; að því sé haldið til haga í þessari umræðu að við séum ekki að hlaupa af stað hér með fögnuði þegar það er ástæða til að að taka þessum aðgerðum, hvort sem það eru mælingar sem gefa til kynna lægri verðbólgu eða vaxtalækkun, með fyrirvara. Þetta eru ekki atburðir sem eru að gerast á þessum heilbrigða grunni sem við óskum þess að þeir gerist á. Þetta eru sértækar aðstæður sem leiða til þessa og við þurfum að taka mið af því í umræðu um fjárlög. Þetta er ekki þessi raunverulegi efnahagsárangur sem við erum að reyna að ná, þótt við vonum að nú fari hann að láta á sér kræla, heldur ákveðnar aðstæður sem leiða til þessa.

Hvað er verið að gera í fjárlagafrumvarpi þegar staðan er þessi í hagkerfinu? Við í Miðflokknum leggjum mikla áherslu á, og sjálfur hef ég fylgst mjög náið með því, stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði sem átti, alla vega að nafninu til og samkvæmt yfirlýsingunum, að koma til móts við með húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Það átti að bæta stöðu ungs fólks, hvort sem það eru leigjendur, eigendur eða tilvonandi eigendur, en þar datt mönnum ekki annað í hug en t.d. að fara í það að hækka skatta á leigjendur. Hvaða áhrif hefur það á stöðu þeirra sem eru einmitt að leigja og safna sér fyrir húsnæði í þessum aðstæðum þar sem það er að verða sífellt flóknara að koma saman fé í útborgun? Það eru þó nokkrar milljónir sem þarf til að komast inn á markaðinn og að safna því í þessu efnahagsástandi getur verið afar flókið án þess að ríkisstjórnin sé ekki að bæta ofan á leigugjöldin með skattahækkun ofan á allt. Þetta er skattahækkun sem getur munað nokkru um. Þetta eru krónur sem fólk er að reyna að nurla saman í þessu erfiða ástandi. Þar að auki sjáum við að eftir að Seðlabankinn fer fram og gengisfellir mikið af því sem kemur fram í húsnæðispakkanum, með breytingum á greiðslukröfum og greiðsluviðmiðum um greiðslugetu fólks, má segja að mikið af því sem þó gat talist ágætt í breytingum ríkisstjórnarinnar, húsnæðispakkanum, gangi til baka. Þar erum við komin á byrjunarreit. Á sama tíma hreyfist verðbólga og stýrivextir hægt. Ástandið er ekki að skána.

Það er það sem ég lýsi persónulega yfir miklum áhyggjum af í sambandi við þessa fjárlagagerð; mér finnst ekki vera horft til þeirrar stöðu sem hefur teiknast upp á síðustu árum gagnvart ungu fólki sem er að reyna að komast inn á húsnæðismarkað. Það er mjög mikilvægt að átta sig á að í því sambandi er stóra málið að sjálfsögðu að ná verðbólgu og vöxtum niður. Það má gera ýmislegt. Það má reyna að hafa áhrif á eftirspurnarhliðina. Það má reyna að vera með þessi inngrip, eins og t.d. aðkoma ríkisins að hlutdeildarlánum. Maður gerir í sjálfu sér ekki athugasemd við það og vonast til þess að það kerfi gangi smurt fyrir sig en þau eru augljóslega engan veginn upphaf og endir alls í því að leysa ástand á húsnæðismarkaðnum. Ég nefni líka innflytjendamálin í sambandi við húsnæðismarkaðinn; það að ætla að ræða húsnæðismarkaðinn án sambands við innflytjendastefnuna sem hér hefur verið rekin er auðvitað fásinna. Hún er kjarni í ástandinu á húsnæðismarkaði. Það hefur aldrei verið byggt jafn mikið á Íslandi og á undanförnum árum og það er verið að byggja mjög mikið í einhverjum skilningi. En miðað við þann fjölda sem hingað streymir þá er það auðvitað ekki nægilega mikið til að mæta þessari stórauknu eftirspurn og það er kannski það sem maður bendir á í því.

Í þessu ástandi er farið í skattahækkanir, eins og ég vísaði til. Hér spannst mikil umræða um veiðigjöld, eða veiðiskatta, eins og alþjóð veit. Sjónarmið okkar í Miðflokknum voru þar á þá leið að það væri varasamt að fara í viðlíka brattar hækkanir í einu vetfangi gagnvart grein sem væri á vissan hátt, á þeim tíma og enn frekar núna, í ákveðinni óvissustöðu á mörkuðum og annað eins. Það var nú ekki kjarninn í þeim málflutningi heldur mun frekar að það blasti algerlega við sveitarfélögum víða um land að þetta myndi hafa gífurlega neikvæð áhrif á atvinnumál eins og hefur síðan sýnt sig með ítrekuðum hætti að undanförnu þótt maður voni að slíkar fréttir og slík tíðindi af hópuppsögnum færist ekki í aukana, eða enn frekari samþjöppun eins og lýst var áhyggjum af. Þá má segja að þær spár hafi margar ræst.

Þar fyrir utan má fjalla aðeins um það í þessu umhverfi sem við erum í núna, vegna þess að ríkisstjórnin fjallar einnig um að markmiðið sé að auka framleiðni á Íslandi. Ef maður horfir yfir atvinnugreinar okkar Íslendinga þá er framleiðniaukning óvíða eins mikil og hún hefur verið í sjávarútvegi á undanförnum áratugum. Framleiðni er auðvitað það hve mikið við náum að gera með hverju handtaki, í einhverjum skilningi, hversu mikil verðmæti við framleiðum á hverja vinnustund og hvernig okkur tekst þannig hægt og rólega með framleiðniaukningu að gera hagkerfi okkar færara um að gera meira fyrir minna. Þetta er auðvitað lykilmælikvarði í því hvernig hagkerfi okkar er að þróast og að mínu mati mælikvarði sem við eigum að horfa mun meira til en bara sjálfs hagvaxtarins. Þegar við tölum um hagvöxtinn erum við líka að tala um að það er hægt að flytja hér inn fleiri tugi þúsunda manna og þá aukast umsvifin í hagkerfinu á heildina litið, að því marki mælist hagvöxtur. En ef hann er ekki að aukast á hvern þann einstakling sem hér býr þá er hagkerfið ekki að þróast í betri átt. Hagvöxtur eykst, umsvifin og þenslan eru mikil, en hagkerfið er ekki að verða færara um að framleiða verðmæti fyrir minna.

Ef við lítum á sjávarútveginn þá er það einmitt grein þar sem framleiðni hefur aukist. Það má sannarlega eiga samtal, sem við erum alltaf tilbúin að eiga, um það hvernig réttlát gjaldtaka fer fram í sjávarútvegi. Ég tók það skýrt fram hér í umræðu um veiðigjöld síðast að mér er síst á móti skapi að veiðigjöldin séu hækkuð með einum eða öðrum hætti. Það er hins vegar spurning hvenær þú gengur það nærri rekstri fyrirtækjanna að t.d. menn sjái ekki sömu tækifæri og áður til fjárfestinga. Þá þurfa menn að hugsa: Hvort erum við að horfa til skemmri tíma fyrir þessa tekjuöflun eða til lengri tíma gagnvart því að gera þessum fyrirtækjum kleift, eins og þeim hefur verið í gegnum tíðina, að fjárfesta í bættri tækni? Bara við það að koma inn í fiskvinnslu þá fallast leikmanni hendur. Tæknin þar er orðin eins og hálfgerður svartigaldur. Þar er verið að skera fisk í sundur með vatni og öðru eins, með háþróuðum hátæknibúnaði sem hefur, af því við tölum um framleiðni, leyst mannshöndina af hólmi á sífellt fleiri sviðum. Það er hin eina sanna framleiðniaukning og hún verður þegar menn hafa tækifæri til að fjárfesta. Það er þetta jafnvægi: Að ríkisvaldið fái til sín, á grundvelli þessarar sameiginlegu auðlindar, þær tekjur sem eðlilegt þykir, það er sannarlega markmið okkar í Miðflokknum, en síðan einnig hversu fær fyrirtækin eru um að fjárfesta í sjálfvirknivæðingu.

Þar komum við aftur inn í innflytjendamálin. Lykilatriði í að móta hér sjálfbæra atvinnustefnu er að fyrirtækin geti fjárfest í sjálfvirknivæðingu. Ef þú segir: Hér er einhver afgangur, hér er mikilvægt að ríkisvaldið stígi inn í til þess að hrifsa til sín þennan afgang, þá eru fyrirtækin í allt annarri stöðu til að fjárfesta í sjálfvirknivæðingu. Í sjávarútvegi sjáum við að með aukinni sjálfvirknivæðingu, með aukinni hátæknivæðingu — stórum, dýrum og áhættusömum fjárfestingum — hefur tekist að minnka vinnuaflsþörfina í greininni. Störfin sem verða til verða þeim mun meira spennandi fyrir hagkerfið, gefa með þeim mun meira í aðra hönd, eru þeim mun eftirsóknarverðari fyrir hámenntað fólk á Íslandi og annað eins, en sömuleiðis líka á öðrum stöðum á skalanum í atvinnuþróun í sjávarútvegi. Hvort sem menn eru hámenntaðir eða ekki þá verða störfin áhugaverðari og skemmtilegri og afurðirnar dýrari og betra og auðveldara að vinna þær. Þetta er það sem hefur verið að gerast í sjávarútvegi vegna þess að menn hafa haft tækifæri til að fjárfesta í stórum stíl. Það er einkum það sem við vorum að benda á. Ég er þeirrar skoðunar að við verðum að bæta framleiðniaukningu á Íslandi. Við verðum að fá fram framleiðniaukningu hér frá ári til árs frekar en að mæla hér aukinn hagvöxt með því að hrúga hér inn fólki frá ári til árs. Leiðin er að fjárfesta í sjálfvirknivæðingu.

Það má líka yfirfæra þetta í vissum skilningi yfir á ferðaþjónustuna þegar við hugsum um afleiðingar skattlagningar okkar. Í ferðaþjónustunni er mjög mikið rætt um framleiðni og henni hefur verið legið á hálsi, ferðaþjónustunni sem atvinnugrein, fyrir að vera ekki að skapa störf sem byggjast á þessari sífellt auknu framleiðni. Það er á mörgum sviðum rétt og það verður að horfast í augu við það að láglaunastörfin sem þar hafa orðið til eru ekki endilega það sem hagkerfið þarf. En hvernig færir ferðaþjónustan sig úr því að vera í slíku starfaumhverfi yfir í að skapa hátæknistörf, eða svona sérhæfðari störf, og auðvitað þá sjálfvirknivæða þau störf sem áður hefði þurft að flytja inn fólk til að sinna? Það er ákveðið úrlausnarefni. Þá þarftu að hugsa um ferðaþjónustuna í heild sinni, hvernig hún er að virka sem atvinnugrein og hvaða möguleika menn hafa þar inni til að fjárfesta í sjálfvirknivæðingu. Hún virkar þannig að hún er fyrst mjög dýr og svo verður hún mjög hagkvæm, bæði fyrir fyrirtækin og fyrir samfélagið. Þá þurfum við ekki á þessum innflutningi vinnuafls að halda. Það er þess vegna sem sjálfvirknivæðingin er hagkvæm fyrir samfélagið.

Hvernig getur ferðaþjónustan komist á þann stað að geta fjárfest í sjálfvirknivæðingu? Ég hugsa, og þess vegna eru það vangaveltur mínar í sambandi við þetta, að ef menn ætla, t.d. eins og er gert hér — í raun og veru er verið að fara í margvíslegar skattahækkanir sem bitna hvað harðast á ferðaþjónustu. Það er hægt að nefna hækkun vörugjalda á ökutæki, það hefur bein áhrif á bílaleigurnar. Ef við skoðum innleiðingu kílómetragjaldsins leggst það þungt á bílaleigur. Ef við skoðum sömuleiðis innviðagjöld á skemmtiferðaskipin, þau fara beint á ferðaþjónustuna. Það eru mörg merki hér um að þessir skattar sem lagðir eru á komi sérstaklega niður á ferðaþjónustunni. Sumir hafa velt fyrir sér: Er ríkisstjórnin að skattleggja ferðaþjónustuna í von um að minnka greinina í einhverjum skilningi eða að senda þau skilaboð að greinin sé í eðli sínu óæskileg? Ég hef hins vegar ákveðna trú á því að ef við horfum til dæmis á ferðaþjónustuna hefur hún ekki vaxið mikið frá 2017–2018, hún hefur meira og minna verið í ákveðnu jafnvægi. Ef það er hægt að nota þetta jafnvægi og þær tekjur sem koma þar af, með miklu minni vinnuaflsþörf, með stóraukinni sjálfvirknivæðingu, þá gætum við verið komin á miklu betri leið með að byggja upp sjálfbært hagkerfi, m.a. sjálfbæra ferðaþjónustu, án þessarar þarfar á innfluttu vinnuafli. En þá þarf ferðaþjónustan að vera í færum til að fjárfesta. Þess vegna segir maður: Ef menn fara mjög geyst í hækkanir gegn ferðaþjónustunni fara menn frekar að halda að sér höndum og hika og líkurnar eru á að uppbyggingin verði áfram af þeim toga sem menn hafa vísað til.

Það eru ákveðnir þættir sem eru forsendur fyrir framleiðniaukningu. Það er stöðugt rekstrarumhverfi, það er þetta skattaumhverfi sem við erum að tala um hér, það er regluverk og annað eins og að sjálfsögðu eru það, eins og ég segi, dýrar fjárfestingar í sjálfvirknivæðingu. Rétt eins og við hugsum um vegasjoppu úti á landi. Þar geta núna unnið 15 manns með tilkomu þeirrar tækni að fólk panti í símanum — hvað svo sem mönnum finnst um það þjónustustig, það er auðvitað breytt þjónustustig en það er bara breyttur veruleiki. Menn fá sjálfsafgreiðslu og vélar geta jafnvel farið að þrífa í stórum stíl á Íslandi, verk sem menn hafa áður þurft að sinna. Það eru meiri háttar tækifæri á Íslandi fyrir sjálfvirknivæðingu og einkum í ferðaþjónustu vegna þess að hún er mannaflsfrek grein. Við þurfum að horfa á ferðaþjónustuna og segja þeim að fara á fullt í þessar fjárfestingar, mun frekar en að segja að við ætlum að taka af ykkur afgangskrónur til að fara með í ríkishítina. Þetta er ákveðin hugsun sem manni finnst að mætti vera ráðandi í þessari nálgun frekar en að segja: Við skattleggjum bara allt í drep.

Þarna hefur maður nefnt þessar atvinnugreinar og þessar skattahækkanir. Við getum líka, í tengslum við kjör almennings sem ég vísaði til í upphafi og kjör ungs fólks, barnafólks og annað eins, bent á að þessar skattahækkanir bitna mjög illa á t.d. viðkvæmum hópum á því sviði. Þar komum við að kosningasvikum hæstv. ríkisstjórnar, loforðunum sem lutu að því að hækka ekki skatta á almenning eins og sagt var. En svo er farið og það gert; skattar eru hækkaðir á almenning. Við sjáum það skýrt í vörugjöldum af ökutækjum upp á einhverja 700.000 kr. hækkun á bíl, þetta smitast út í verðlag almennt. Þetta fer ekki bara á þá bíla sem fluttir eru inn. Þetta gerir það þegar í stað. En síðan er augljósara dæmi, að afla eigi einhverja 3 milljarða á ári með því að afnema hina rótgrónu samsköttun. Hún gerir hjónum kleift að færa á milli tekjuþrepa svo fjölskyldan mæti skattinum sem ein heild. Nú á að gera fólki ókleift að færa milli skattþrepa ef annar aðilinn er með hærri tekjur en hinn með töluvert lægri tekjur. Þar er ríkisvaldið jafnvel að réttlæta að taka meiri pening af fólki með einhvers konar jafnréttissjónarmiðum. Við getum sagt að þeim verði allt að vopni í þeirri umræðu, að beita slíkum sjónarmiðum fyrir sig, þetta er augljós tekjuöflunarleið og skattahækkun gegn almenningi. Ég nefni þetta í sambandi við barnafjölskyldur vegna þess að þar er fólk oft í þeirri stöðu að annar aðilinn er jafnvel um langt skeið með mun hærri tekjur en hinn aðilinn. Fæðingarorlofið klárast og menn vilja ekki fara strax út á vinnumarkað vegna þess að barnið er ekki orðið nógu gamalt til að fara á leikskóla. Þá er þessi samsköttun, sem hefur nýst fjölskyldum í viðkvæmri stöðu, afnumin með einu pennastriki.

Þetta er sífellt aukin skattaöflun, skattahækkanir þvert á loforð. En síðan eru það útgjöldin sem við í ágætu nefndaráliti okkar förum nú vel yfir, þ.e. það nefndarálit sem fulltrúi okkar í fjárlaganefnd skrifar undir. Ég held að á heildina litið séu það sannarlega vonbrigði flestum sem fylgjast með þessu hve útgjaldaaukningin hefur verið mikil, 143 milljarðar, og kannski ekki síst í ljósi þessara síðustu ára þegar það væri mun meira viðeigandi núna að senda skilaboð um að breytt væri um kúrs, en í staðinn er gefið í. Það verður einmitt að skoða þessi heildarútgjöld í samhengi við síðustu ár en ekki að einangra þetta við þetta ár. Hér voru tækifæri til að ná fram raunverulegri hagræðingu á fjölda sviða en þeim var sleppt. Við nefnum mörg þeirra í nefndarálitinu. Það eru nokkur svið sem þar eru tekin sérstaklega fyrir, hvort sem það eru útlendingamál, við nefnum fjölmiðlana — þar eru sannarlega tækifæri — loftslagsmálin og svo eru ýmis önnur smærri svið.

Í raun og veru má hugsa sér að maður líti svo á að ef semja eigi fjárlög þá sé það ekki aðeins um hvar við getum skorið niður, eða sýnt alvarlegt aðhald í þeim rekstri sem blasir við okkur núna, heldur væri fyrsta skrefið auðvitað að sleppa því að stórauka útgjöld á ýmsum sviðum; hvort sem það er í áformum um að ellilífeyrir og örorkulífeyrir hækki í samræmi við launavísitölu, sem á að geta kostað fleiri og fleiri milljarða á ári, 5–6 milljarða binding, eða fyrirhuguð eingreiðsla upp á 2 milljarða. Svo er auðvitað þessi sýndarmennska með samning fatlaðs fólks þar sem ríkisvaldið í raun og veru semur lög þvert á lög, og brýtur hálfpartinn lög við þá lagasetningu með því að framkvæma ekki kostnaðarmat um hvað þetta þýði fyrir sveitarfélögin, heldur ber sér á brjóst með lagasetningu sem er ekki fjármögnuð. Þeirra útgjalda sem verður þörf af þessum sökum er hvergi getið í þessari fjárlagagerð. Það er áfram látið eins og þetta muni ekki hafa nein áhrif á hvort sem það eru útgjöld ríkissjóðs eða sveitarfélaga, þegar sveitarfélögin mátu að þetta væru 15 milljarðar. Munu sveitarfélögin gera lögmæta kröfu gagnvart ríkinu að það borgi þetta? Bætist það bara ofan á útgjaldastabbann? Það er auðvitað fyrsta skrefið í þessu: Ekki aðeins að horfa vel á aðhaldið, hvar við getum haldið að okkur höndum í núverandi ástandi, heldur hvar við getum sleppt því að auka enn frekar útgjöld. En það er ekki gert.

Í sambandi við aðhaldið sjálft þá nefnum við sannarlega loftslagsmálin. Staðan þar er að 144 milljarðar hafa farið í þann málaflokk frá árinu 2017. Frá 2017–2024 hafa farið 144 milljarðar og á árinu 2025–2029 fara 28,4 milljarðar árlega í þetta samkvæmt áætlun. Ekki aðeins er afar erfitt á ýmsum sviðum að árangursmæla þau útgjöld sem í þetta fara heldur er hreinlega í sumum tilvikum, eins og hefur komið fram ítrekað í fyrirspurnum og svörum við þeim, sennilega ekki vitað hvar þessir peningar enda. Þarna eru augljós meiri háttar tækifæri til hagræðingar sem ekki eru nýtt.

Við getum nefnt fjölmiðlakaflann: Við setjum 7 milljarða í Ríkisútvarpið í bein útgjöld, eða svo að segja. Ég man nú ekki hvort talan er nákvæmlega 7 eða jafnvel meira í átt að 8 milljörðum. Það er fyrir ríkisútvarp. Ég er nú úr fjölmiðlageiranum og hef starfað hjá helstu fjölmiðlum landsins og sömuleiðis rekið minn eigin fjölmiðil. Mér, rétt eins og öðrum á því sviði, er fullkomlega fyrirmunað að skilja hvernig rekstrarkostnaður Ríkisútvarpsins getur numið þessum fjárhæðum. Það hlýtur að vera einhver alvarlegur rekstrarvandi þar innan borðs eða afkastavandi vegna þess að ekki eru afurðirnar þannig að við getum réttlætt 7 milljarða útgjöld í þetta til þess að þetta raunverulega standist. Við höfum lagt til 20% aðhaldskröfu þar, sem ég tel mjög hóflega kröfu. Við höfum líka lagt til aðgerðir sem geta komið í áttina að þessari kröfu. Við höfum t.d. nefnt að við þurfum ekki að halda úti þjónustu á ensku eða pólsku. Við höfum nefnt að þarna er alls konar dægurmálastarfsemi sem einfaldlega þrífst ágætlega á einkamarkaði, það er engin þörf fyrir að ríkið stigi sérstaklega inn í nema það sé með önnur markmið í huga en að sinna þessu vegna þess að enginn annar sinnir þessu. Það er ekki verið að sinna markaðsbresti á ýmsum sviðum. Kannski gegnir öðru máli sannarlega um ákveðinn fréttaflutning, jafnvel ákveðna menningarumfjöllun sem ekki þrífst á einkamarkaði, hvort sem það er um bókmenntir eða tungumálið, þó að slíkri umfjöllun sé að mínu mati ábótavant. Ég er þeirrar skoðunar — hætti maður sér út í umræðu um einstaka dagskrárliði og annað eins á Ríkisútvarpinu — að Rás 1 hafi nú sögulega séð haft þessu ágæta hlutverki að gegna, að vera ákveðin menningarmiðstöð en ég sé ekki að það sé verið að rækja það hlutverk í sama mæli og oft áður þessa dagana. Maður myndi standa vörð um Rás 1 áður en öxin kæmi að Rás 2 sem er bara mjög sambærileg öðrum einkastöðvum og enginn getur fært rök fyrir að þurfi nauðsynlega að vera haldið úti af ríkisvaldinu. Svo er væntanlega fjöldi annarra liða þarna inni sem er einfaldlega ekki réttlætanlegt að ríkismiðillinn sé að verja fjármunum í.

Í því sambandi þá nefni ég auðvitað alltaf tillögu okkar í Miðflokknum um að stórlækka útgjöld til málaflokksins strax með því að hætta fjölmiðlastyrkjunum, upp á einhverjar 500 milljónir á ári, og leyfa fólki að ráðstafa sínu útvarpsgjaldi sjálft. Þá værum við komin með miklu lýðræðislegra ferli og þá væru þessi stóru og miklu útgjöld til fjölmiðla á vegum ríkisvaldsins, að mínu mati, mun réttlátari; þá væri lýðræðisleg leið fyrir fólk til þess að ákveða hvert þetta myndi streyma. Það væri eðlilegt skref og myndi réttlæta betur þessa 7 milljarða. En ef þeim á að vera varið svona tel ég mun eðlilegra að dregið sé verulega úr fjárhæðinni og þá er Ríkisútvarpinu bara gert að haga seglum eftir þeim vindum.

Við nefnum líka rekstur hins opinbera í víðari skilningi. Ætli það séu ekki mest lýsandi fyrir tilraunir stjórnarinnar í þá veru hvernig umræðan þróaðist í sambandi við breytingu á reglum um sérstaka vernd opinberra starfsmanna. Þar er auðvitað þessi uppsagnarvernd og þessir lagalegu erfiðleikar við að segja fólki upp hjá hinu opinbera ef það þykir ekki standa sig. Þegar farið var fram með afnám þessara sérreglna — hvort það hafi verið hæstv. fjármálaráðherra sem gerði sig líklegan til þess að gera þetta — þá komu skilaboð frá launþegahreyfingu opinberra starfsmanna, stéttarfélögum þeirra, t.d. BSRB, sem mig minnir að hafi verið á þá leið að í þessu afnámi sérreglna um uppsagnaverndina fælist stríðsyfirlýsing. Það hefur ekki heyrst mikið frá hæstv. fjármálaráðherra um þessi áform eftir þau hörðu viðbrögð, né heldur hefur maður trú á því að Samfylkingin sé tilbúin til að breyta þessum reglum eða styðja þessar breytingar sem væru fullkomlega eðlilegar þegar við horfum á það hvernig opinberi geirinn hefur vaxið fram úr öllu hófi á Íslandi á undanförnum árum. Það þarf að nálgast þá þróun og spyrna við þeirri þróun af mun meiri festu en gert er núna.

Ég nefni þessar sérreglur um uppsagnavernd vegna þess að treginn til þess er augljóslega lýsandi fyrir það hvernig þessari ríkisstjórn mun haldast á því mikilvæga samfélagslega verkefni að spyrna við þessum ofurvexti opinbera geirans. Ef menn geta ekki gert þær sjálfsögðu og eðlilegu breytingar þá hefur maður því miður takmarkaða trú á að þeir séu tilbúnir til að gera, eins og maður myndi auðvitað vilja sjá birtast okkur í þessum fjárlögum, að það sé farið í raunverulegt — ég segi ekki átak heldur breytta hugsun hjá hinu opinbera um hvernig við stöndum að rekstri þessara stofnana; hvernig endurráðningum er háttað, hvaða sérstöku átök verður farið í á hverjum stað, hvernig við horfum í reksturinn, hvernig fita hefur safnast í rekstri ýmissa stofnana vegna ýmissa pólitískra áherslna síðustu ára, hvort sem það er í persónuvernd eða jafnréttisfulltrúar eða umhverfisfulltrúar. Það eru alls konar stöður og alls konar starfsemi sem hefur grafið um sig hjá opinberum stofnunum og í opinbera geiranum sem mætti missa sín. Markmiðið er kannski góðra gjalda vert en alveg augljóst fyrir mörgum að starfsmannakostnaðurinn mjög víða hjá hinu opinbera er alveg útblásinn og sömuleiðis þessi þróun almennt með launin. Auðvitað var hugsunin hér forðum daga að á meðan opinberir starfsmenn nytu aðeins meira starfsöryggis væru launin aðeins lægri. En nú er þróunin ekki sú, heldur heyrir maður frá fólki á einkamarkaði að það sé hreinlega mjög erfitt á mjög mörgum sviðum að keppa við hið opinbera sem skyldi þó aldrei vera. Það er ekki að maður sé með því með nokkru móti að gera lítið úr því magnaða starfi sem er unnið á vegum hins opinbera á Íslandi, hvort sem það er í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi eða öðru eins, en við þurfum samt, einmitt til að þessi starfsemi geti haldist góð, alltaf að vera vakandi fyrir óþarfasóun sem rýrir ímynd hins opinbera. Það er það sem maður hefði viljað sjá hér.

Ég get líka nefnt að hér fara auðvitað hundruð milljóna í ýmis frjáls félagasamtök úti í bæ sem njóta ríflegra ríkisstyrkja. Ég held að allt það umhverfi sé þess eðlis á þessum tíma að við þurfum að skoða það vel. Hvert erum við að senda alla peningana á því sviði til þessara frjálsu félagasamtaka sem mörg fá hvergi annars staðar tekjur en frá ríkinu og eru þá í einhverjum skilningi mun líkari ríkisstofnunum frekar en frjálsum félagasamtökum; maður sér þess ekki stað heldur hvernig því öllu er háttað.

Útlendingamál er meiri háttar málaflokkur hér. Iðulega er því haldið fram að þar sé allt í himnalagi eftir að útgjöld til afmarkaðs málaflokks vegna hælisleitenda, þ.e. vegna þjónustu eða umsókna um alþjóðlega vernd, hafi lækkað. Þau hafa lækkað og það er sannarlega fagnaðarefni. En það er afar mikilvægt í umræðu um útlendingamál, og kostnaðinn sem hlýst af þeirri starfsemi allri á vegum ríkisins, að við horfum á heildarmyndina en ekki bara á útgjöld í einstaka málaflokkum innan þessarar heildarmyndar. Það er, ef við tölum um þessa 6 milljarða í formlegan kostnað, sem hafa lækkað, er margt annað sem bætist þar við. Í sambandi við 6 milljarðana þá bendi ég einnig á að 6 milljarðar í hælisleitendakerfið eru engir smápeningar. Þar vísa ég til þess sem við höfum oft bent á í þessari umræðu að það getur gripið um sig ákveðin hraðablinda, ef svo má segja. Það er, ef maður er á 140 km hraða og fer svo niður í 110 km hraða líður manni eins og maður sé að keyra voðalega hægt, en maður er enn á fleygiferð í að sóa peningum sem hafa mjög takmörkuð jákvæð samfélagsleg áhrif á Íslandi, að mínu mati, þ.e. að halda hælisleitendakerfinu úti í núverandi mynd í kringum alþjóðlega vernd hér á Íslandi.

Við höfum nú lagt til að gera alfarið hlé á þessu. Almennt er það mín skoðun að við eigum hægt og rólega að vinda ofan af þessu kerfi og taka upp alveg nýja nálgun í þessu í stað þess að fá hér straum fólks sem sækir um hjá okkur vegna þess að út frá Dyflinnarreglugerðinni eiga þau, eðli máls samkvæmt, að hafa komið við í öruggu ríki á leiðinni og þar með erum við laus af ábyrgð gagnvart þessum einstaklingum. Að stjórnvöld vilji ekki nýta þennan rétt og þetta svigrúm sem við höfum til að raunverulega stöðva streymið hingað finnst mér mjög slæmt. Þessir 6 milljarðar sem fara í þetta, formlega litla talan, sem er hluti af mun stærri mynd, þetta eru mjög miklir peningar. Það er hægt að gera ótrúlega hluti fyrir 6 milljarða. Við gætum reist hér annað ríkisútvarp og haft annað ríkisútvarp að störfum til hliðar við núverandi ríkisútvarp, kannski til mótvægis við hitt [Hlátur í þingsal.] ef við myndum hætta að verja þeim í þetta sem hefur ekki einu sinni jákvæð áhrif fyrir samfélagið.

Til viðbótar við þessa 6 milljarða endurgreiðir ríkissjóður ákveðinn kostnað sveitarfélaga fyrstu tvö árin eftir að útlendingur hefur fengist skráð lögheimili á Íslandi. Sveitarfélögin fá líka endurgreitt vegna flóttamanna sem eru í þjónustu hjá þeim vegna samninga um samræmda móttöku flóttafólks. Vinnumálastofnun annast þessar greiðslur til sveitarfélaganna, þannig að það er ríkissjóður sem er annast þessar greiðslur. Í þessum liðum hafa útgjöldin verið að vaxa á síðustu árum. 2023 voru þetta 4,4 milljarðar, 2024 voru þetta 4,5 milljarðar og 2025 voru þetta 4,9 milljarðar. Þarna er ekki að sjá að það takist að draga seglin saman í útgjöldum. Þarna erum við samanlagt komin með 11 milljarða formlega tölu í bein útgjöld í þennan málaflokk. Þetta er að aukast um 9% á milli ára. Á sama tíma og menn tala um að það sé nú allt að róast í þessum málaflokki þá erum við komin hérna með um 11 milljarða af algerlega formlegum kostnaði sem fer í þetta. Við getum líka farið í atvinnuleysisskrána, þar sem við erum að borga einhverjar 34–37 milljarða á ári, og hvort útlendingar séu ekki 57% af þeim tölum á atvinnuleysisskrá. Þar erum við komin með tæpa 17 milljarða, eitthvað svoleiðis, 17–18 milljarða.

Það eru 11 milljarðar og 17 milljarðar, þar erum við strax komin í 28 milljarða. Þetta eru líka EES-ríkisborgarar og það er samkvæmt ákveðnum kerfum. Það hefur verið áhyggjuefni hvernig haldið er á þeim málum í sambandi við EES-borgara sem fá hér atvinnuleysisbætur og fá svo svokallað U2-leyfi til að fara til Evrópu og ferðast innan EES og leita sér, að nafninu til, að vinnu þar á meðan þeir eru með greiðslur hér og hafa getað snúið aftur til Íslands innan þriggja mánaða, hafandi ekki fundið vinnu, og framlengt þessa atvinnuleit. Það hefur varla mátt ræða þetta. Það er óskandi og vonandi að ríkisstjórnin treysti sér til að taka á þessu. Það er afskaplega mikilvægt. Maður heyrir alveg skýrt, á hverjum sem maður talar við innan greinarinnar, að þarna hefur pottur verið brotinn og fólk hefur komist upp með alls konar í þessu kerfi. Þarna aftur erum við að greiða úr ríkissjóði peninga sem ég fæ með engu móti séð að gagnist íslensku samfélagi. Hér eru komnir einhverjir 30 milljarðar í útlendingamál, atvinnuleysisbætur og annan kostnað sem ekki er hægt að horfa fram hjá eða láta eins og sé eitthvað lítils háttar.

Við þetta bætast fangelsin. Alls hafa 327 fangar með erlent ríkisfang frá 56 löndum hafið afplánun í fangelsum hér á undanförnum fimm árum. Það er talið að hver fangi kosti 57.000 kr. á dag, þ.e. að vera með einhvern í fangelsi í eitt ár kostar 20 milljónir. Þegar við prófum að reikna út meðaltalið hér, prófum að taka þetta fimm ára tímabil og segjum að fangar hafi verið í tvö ár inni í meðalafplánun, þá kostaði þetta 14 milljarða á fimm árum. Það eru kannski einhverjir rúmir 2–3 milljarðar á ári sem fara í þetta. Ég hef sagt á þessu sviði að stundum þarf maður að koma hérna inn á Alþingi — og maður er nú nýr í öllu stóra samhenginu — og spyrja að hluta til bara eins og barn: Af hverju erum við að halda uppi svona miklum fjölda útlendinga í okkar fangelsum? Hvaða hagsmunum þjónar það? Ég veit að það eru samningar, milliríkjasamningar og alþjóðasamningar, en af hverju erum við ekki að endurskoða þá? Hvernig getum við komið okkur út úr þessari stöðu, að meiri hluti fanga hér sé útlendingar? Hvað verður þá um betrunarstofnanir fyrir okkar brotamenn sem villast af leið — eða eru náttúrlega harðsvíraðir margir, en maður myndi óska þess að þetta gæti verið raunveruleg betrun — ef þar er komin glæpamenning sem er innflutt og allt öðruvísi og öllu grimmari og eðlisólík því sem við myndum vona að væri í mesta lagi að þrífast hér á Íslandi? Þá er ekki mikil betrun að fara þangað inn, t.d. fyrir ráðvillt íslensk ungmenni sem brjóta af sér og fá að fara þarna inn í þeirri von um að þau bæti ráð sitt og hið öfuga gerist; menn kynnast harðari glæpum.

Hér eru komnir tugir milljarða í málaflokkum sem við teljum að væri hægt að skera snarlega niður í með skýrum skilaboðum. Að lokum þá nefndi ég auðvitað innflytjendamálin í þessu stóra samhengi fjárlaganna og hvernig við skattleggjum og hvernig við treystum og tryggjum öfluga fjárfestingu í okkar atvinnugreinum til að þær geti aukið framleiðni sína og reiði sig minna og minna á innflutt vinnuafl, sem ég bendi á að er ekki sjálfsögð hagræn aðgerð. Við gerum ekki bara hvað sem er fyrir hagvöxt á Íslandi. Við gerum ekki bara hvað sem er fyrir tekjur fyrir ríkissjóð. Við setjum ekki auglýsingaskilti á Alþingishúsið. Það eru ýmis mörk sem við drögum og ég dreg mörkin við það að innflytjendastefna sé hér þannig til framtíðar að útlendingum fjölgi margfalt hraðar en Íslendingum vegna þess að það mun hafa afar vafasöm samfélagsleg áhrif þegar til lengdar lætur. Þessi hugsun verður að komast inn í fjárlagagerð og nálgun opinberra fjármála í víðari skilningi, að við spyrjum okkur hvernig við getum aukið framleiðni í hagkerfinu.

Nú er atvinnustefnuvinna í gangi. Ég þykist vita að menn séu þar meðvitaðir um þessi sjónarmið en bendi mönnum á að það er hægt að byrja nú þegar í fjárlagagerðinni að leggja þessa áherslu á þróun atvinnulífs hér á Íslandi. Það þarf ekki að fara í sérstaka vinnu til þess að ýta þeim ákvörðunum á undan sér. Þar fyrir utan nefni ég að fjölmargir aðrir liðir í þessum fjárlögum, hvort sem við horfum til menntakerfis, heilbrigðiskerfis, félagsþjónustu, húsnæðismarkaðar eða samgöngumála, staðan í þessum málaflokkum myndi horfa allt öðruvísi við okkur ef ekki væri fyrir þróunina í útlendingamálum og innflytjendamálum í víðari skilningi. Það verður að taka þá umræðu inn í umræðuna um allt annað í fjárlögum. Hvert er ástandið í menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu, á húsnæðismarkaði, í félagsþjónustu, í samgöngum? Ég skil ekki hvernig mönnum dettur í hug að ræða þetta án þess að hafa innflytjendamál með í reikningnum. Maður hvetur til þess í þessari fjárlagagerð að menn horfi á þá heildarmynd. Ríkisstjórnin er að byrja og þetta eru fyrstu fjárlögin. En ég geri kröfu um að þetta verði haft í ríkara mæli til hliðsjónar í allri þeirri hugmyndafræðilegu, kerfislegu, efnahagslegu og hagfræðilegu vinnu sem býr að baki þessu. — Að því sögðu lýk ég máli mínu á hárréttum tíma.