157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:21]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Mig langar að halda áfram þar sem frá var horfið í gær. Ég náði ekki alveg að klára það sem ég vildi koma á framfæri. Ég er aðallega að einbeita mér að því að fara yfir þær skattahækkanir sem hér eru í vændum og mig grunar að það gæti ákveðins misskilnings, alla vega í nokkrum þeirra, upp á það hvort tekjur muni raunverulega skila sér.

Mig langar til að byrja á að tala aðeins um bílaleigurnar. Hér í morgun fór hæstv. ráðherra yfir það — ef við byrjum aðeins á að tala um það sem hæstv. forsætisráðherra fór yfir, hún var ekki hrifin af því að hér væri almennur flatur niðurskurður þrátt fyrir að ríkisstjórnin boði 1% niðurskurð í stjórnsýslunni, vegna þess að þá væri fólk að fría sig pólitískri ábyrgð. Gott og vel. Ég hef skilning á þessum orðum ef þeim fylgdi að það væri niðurskurður annars staðar. En staðreyndin er sú að útgjöld ríkissjóðs hafa aldrei verið hærri hjá nokkurri ríkisstjórn fyrr eða síðar og sá niðurskurður sem talað er um er 10 milljarðar á þessu ári. Þau hafa breytt einhverju og lækkað útgjöld um 10 milljarða, sem væri vel ef við myndum setja punkt þar. Nei, þau juku um 143 milljarða þannig að þessir 10 milljarðar mega sín lítils í samanburði við það sem útgjöld hafa verið aukin um. Svo minntist forsætisráðherra á það í viðtali á Bylgjunni að bílaleigur þyrftu að taka þátt í orkuskiptum vegna þess að almenningur vildi keyra um á rafmagnsbílum og bílaleigur væru stór hluti á endursölumarkaði, í sölu á notuðum bílum, og þær yrðu þess vegna að koma með í þessa vegferð og kaupa rafmagnsbíla. Þarna er einhvers konar raunheimarof vegna þess að bílaleigurnar vilja alveg koma með og bílaleigurnar, samanber stærstu bílaleigur landsins, Bílaleiga Akureyrar, Hertz og fleiri, eru búnar að koma með í þessari vegferð, keyptu fullt af rafmagnsbifreiðum og vilja taka þátt. En hver er niðurstaðan? Innviðir eru ekki tilbúnir fyrir þetta aukna magn. Það skiptir samt ekki öllu máli vegna þess að það hefur komið fram alveg skýrt í umsögnum við þetta mál að bílaleigurnar vilja taka þátt en viðskiptavinurinn, hann er ekki tilbúinn. Viðskiptavinurinn tekur þessa bíla ekki á leigu. Það er vandamálið. Á í alvörunni að pína bílaleigurnar til að kaupa bifreiðar sem þær ná ekki að leigja út? Þetta auðvitað gengur ekki upp. Þetta er einhvers konar efnahagslegur hliðarveruleiki sem þessi ríkisstjórn lifir í.

Í staðinn fyrir að horfa bara á raunveruleikann og aðlaga ríkisfjárlögin að raunveruleikanum eru farnar leiðir eins og að hækka vörugjöld um 7,5 milljarða. Ríkisstjórnin var ekki tilbúin með það sjálf, þar var ekki komið frumvarp, heldur ætlar meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar að gera breytingartillögu upp á 7,5 milljarða og hækka vörugjöld á bifreiðar um 7,5 milljarða. Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir það að venjulegir heimilisbílar, fólksbílar, hækka um 1–2 milljónir. Við erum ekki að tala um lúxusbíla. Venjulegir bílar hækka um 1–2 milljónir. Þetta er í boði ríkisstjórnar sem lofaði að hækka ekki skatta. Þetta er í boði ríkisstjórnar sem sagðist ætla að taka til í ríkisfjármálum, draga úr útgjöldum, borga niður skuldir og hækka ekki skatta. En raunveruleikinn er sá að skattahækkanir eru komnar vel yfir 25 milljarða skuldir, það á að auka við skuldir á næsta ári og ríkisútgjöld eiga að hækka um 143 milljarða. Þetta er raunveruleikinn.

Það kemur fram í umsögnum frá þessum bílaleigum að þær vilji vinna með ríkinu og þá langar mig að færa mig aðeins yfir í kílómetragjaldið vegna þess að skattar á bifreiðar — aftur, það er auðvitað pólitísk ákvörðun hjá þessari ríkisstjórn að ætla að hækka svona mikið skatta á bifreiðar og við vitum það sem höfum fylgst með Reykjavíkurborg undir forystu Samfylkingarinnar að þeim er mjög illa við bifreiðar. Þetta er auðvitað bara þeirra pólitíska ákvörðun en ekki segja þá að þú ætlir ekki að hækka skatta. Vertu bara heiðarlegur með það í kosningabaráttunni að fólk kaus þessa flokka örugglega út á kosningaloforðin og þau voru að hækka ekki skatta. En við erum að fara að verða fyrsta landið sem tekur upp svona kílómetraskatta á bifreiðar. Vissulega eru nokkur lönd farin að tala um þetta og þá er það aðallega kílómetragjöld á rafmagnsbifreiðar sem við erum búin að taka upp. Við erum búin að því. Samhliða tækniframförum þá mun þetta gerast. Bretland tilkynnti um daginn að það hygðist taka þetta upp og ætlar að gera það árið 2028 og það í skrefum. Fyrirsjáanleiki og gert í skrefum. Við vitum og það kemur fram í umsögnum að þetta er ekki að fara að ganga upp, þetta er gallað frumvarp. Engu að síður á að keyra þetta áfram. Það má ekki fresta gildistökunni, það má ekki taka þetta í skrefum. Þetta er gert þvert á allar aðvaranir og í ofanálag mun það auka kostnað gríðarlega í öllum kerfum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og alla stjórnsýsluna að innleiða þetta. Þetta er vanhugsað á svo margan hátt.

Þá kemur að því að þessi ríkisstjórn, þessi meiri hluti, hlustar ekkert á umsagnir, alveg ofboðslega litlar breytingar eru gerðar eftir umsagnir. Það er bent á að eitthvað sé verulega gallað. Inn um eitt, út um hitt, skiptir engu máli. Af hverju? Ég er með kenningu um það. Það er vegna þess sem við óttuðumst. Þegar við stóðum hér í sumar þá vorum við ekki að tala gegn því að það mætti skoða hækkun á veiðigjöldum. Það var PR-málið, að við værum á móti veiðigjöldum. Nei, það er af því að þau geta ekki tekist á við raunveruleikann. Hver er raunveruleikinn? Hvað eru þau raunverulega að leggja fram? Leikritið var að þegar við vorum að reyna að benda á til að mynda umsagnir frá aðilum sem þekktu til, sveitarfélögum um allt land, um hvað mætti laga — ekkert, það mátti ekkert laga. Forseti beitti 71. gr. þingskapalaga. Hún gat gert það til að knýja fram niðurstöðu en það sem var slæmt við það var að öll mál sem á eftir koma hjá þessari ríkisstjórn eru ótrúverðug vegna þess að allt sem var sagt um kílómetragjald, vörugjöld í umsögnum, allt, er bara: Inn um eitt, út um hitt. Þeim virðist vera alveg sama, þau vita að þau geta beitt 71. gr. þingskaparlaga. Þau ætla ekki að taka mark á þessu. Við fáum hér gesti til að koma, rýna mál og eyða dýrmætum tíma sínum til að benda okkur á hvað mætti betur fara og svo koma bara sömu minnisblöðin frá ráðuneytinu, það ætlar bara að keyra málið áfram, það eru bara einhverjar smátilfæringar, engar stórar breytingar, ekkert hlustað að neinu ráði. Ég óttast að það sé vegna þess að þau treysta á að þau þurfi ekki að laga mál, þurfi ekki að standa í því, þurfi ekki að koma upp í ræðu, þurfi ekki að koma í andsvör við okkur. Þau hafa enga sannfæringu fyrir þessu, þetta er vont og það er óþægilegt að heyra það en þau treysta á að forseti beiti sér.

Það eru hér mörg fleiri slæm skattahækkunarmál. Ég vek athygli á því að þó að skattahækkanir séu gríðarlega miklar, yfir 25 milljarðar, þá er það ekkert í samanburði við útgjöld upp á 143 milljarða. Ég get sagt strax það sem ég legg til: Hættum að eyða tímanum hérna, setjum málið aftur inn í fjárlaganefnd. Minnkið þessi útgjöld um 25 milljarða og þá getum við öll hjálpað ykkur við að standa við loforð um að hækka ekki skatta. Gerum það. Ef þið getið hækkað útgjöld um 143 milljarða þá hljótið þið að geta hækkað þau um tæplega 120 og ekki hækkað skatta á fólk og staðið við kosningaloforðin. Það er mín tillaga.

Svo erum við með fleiri óheppilegar skattahækkanir líka. Vandamálið við þessar skattahækkanir eins og með vörugjöldin er að þetta er ekki að fara að skila sér. Það er ekkert leyndarmál. Það er í fréttum að skipin eru að koma stútfull af bílum af því að auðvitað verður hegðunarbreyting. Þú veist að það kemur einhver skattahækkun og þá aðlagar þú þig að því. Þess vegna eru víðast hvar í heiminum skattahækkanir boðaðar með fyrirsjáanleika. Þær eru tilkynntar og þær gerast í skrefum. Það er tekið tillit til þess hvað það kostar fyrir fyrirtæki að breyta kerfunum sínum o.s.frv. Ekki þessi ríkisstjórn. Nei, hún ætlar að keyra þetta áfram, 1. janúar, eftir nokkra daga, hækkun um 7,5 milljarða. Þetta mun ekki skila sér í kassann. Engu að síður, það kemur fram í gögnum Samgöngustofu, ætla þau ekki að breyta tekjuáætlun ríkisins af því að það er betra að horfa bara og sjá ekki til hliðar og halda að þau séu enn þá innan stöðugleikareglunnar.

Þau eru mjög hrifin af stöðugleikareglunni sem á að koma í veg fyrir að ríkisútgjöld vaxi um 2% á ári. Þetta er ein gallaðasta regla sem ég hef heyrt um til að sporna við ríkisútgjöldum. Við erum innan stöðugleikareglu er sagt, innan 2%. Reyndar eru vaxtagjöld og aðrir þættir ekki inni í því og ef við tækjum tillit til þeirra væri þetta 3,2%. En raunveruleikinn er sá að ríkisútgjöld eru að vaxa um hátt í 10%, samt kemur fólk í fjölmiðla og segir að það sé innan einhverra 2%. Af hverju? Jú, af því að það er glufa, þetta er glufa sem ég held raunverulega að ríkisstjórnin ætti að reyna að loka. Glufan er sú að ef þú hækkar skatta þá máttu taka tillit til þeirra þannig að þá getur þú aukið útgjöld sem nemur skattahækkunum. Þess vegna er ríkisstjórnin komin í þessa stöðu, að hún hækkar og hækkar ríkisútgjöld. Hún virðist ekki geta sagt nei við neinn. Þetta er örugglega eitthvert innanhússmein hjá ríkisstjórninni. Og hver er lausnin? Jú, þau settu sjálf þessa stöðugleikareglu. Þau eru ekkert að spá í hvort þau hækki útgjöld eða ekki, þau eru bara að velta fyrir sér: Hvernig getum við aukið við skattana til að vera innan 2%? Þessi 2% eru einhvers konar mark sem allir sjá að er ekkert mark takandi á, því að raunveruleikinn er sá að útgjöld eru að hækka um 10%. Það eru meiri útgjöld en á milli áranna 2024 og 2025, kosningaútgjöldin, og meira en á Covid-árunum. Það er kominn einhvers konar nýr botn.

Þetta er ekki gott fyrir okkur skattgreiðendur því ég veit að ef þau breyta ekki út af þessari leið, það sjá það allir, þá munu skattar halda áfram að hækka. Það er ekki nokkur möguleiki að það verði hallalaus fjárlög 2027, enda er það svo að ef rýnt er í þetta fjárlagafrumvarp sést að meira og minna allt sem gott er á að gerast á næsta kjörtímabili. Ég held að það veiti ekki af að þessi ríkisstjórn skili hallalausum fjárlögum núna. Tökum þetta inn í fjárlaganefnd aftur. Það yrði raunverulegur stuðningur við þetta af því að ríkisstjórnin hefur stuðning frá fólkinu í landinu. Þau voru kosin út á það að skila hallalausum fjárlögum.

Svo virðist vera einhver misskilningur líka þegar kemur að fjármagnstekjuskatti á leigutekjur. Þeir sem eru að leigja út íbúðir, hvernig gera þeir það? Þeir gera það yfirleitt í gegnum félag, ef þeir eru í stórri útleigu, með margar íbúðir, af því að þá geta þeir afskrifað, geta notað kostnaðinn á móti. Einstaklingar mega bara leigja út tvær íbúðir en borga lægri fjármagnstekjuskatt en fyrirtæki. Ríkisstjórnin getur auðvitað ekki viðurkennt að hún sé að hækka skatta þannig að þetta er einhvers konar leiðrétting eða verið að loka einhverjum glufum hjá þeim. En þá vil ég benda á að leiðréttingin hefur átt sér stað. Leiðréttingin var gerð af því að einstaklingar voru að borga fullan fjármagnstekjuskatt af leigutekjum en gátu ekki notað gjöld á móti tekjunum þannig að það var ójafnvægi gagnvart félögum, því hverjir eru að leigja þessar íbúðir? Það er venjulegt fólk, fólk eins og ég og þú, allir Íslendingar sem eru bara að reyna að drýgja tekjurnar, fólk er kannski að fara í nám, ungt fólk sem er að fara í nám, á íbúð og leigir hana á meðan, fólk sem býr til litla íbúð í sínu eigin húsi og leigir út. Það er yfirleitt ekki fólk sem er að okra hvað mest á leigjendum, vill bara góða leigjendur og þetta er þeirra eign. Þetta er hópurinn og ríkisstjórnin virðist ekkert hafa reynt að ná utan um það hvern væri verið að skattleggja. Þetta var líka gert til að fjölga íbúðum í útleigu. Hvað gerist? Í umsögnum er bent á að leiga muni hækka. Það er búið að benda á það. Það kemur fram í umsögnum. Leiga mun hækka. Þeir sem eru að leigja út til að hagnast á því munu flytja eignirnar í félög. Þetta bitnar bara á ungu fólki sem er að reyna að koma sér inn á markaðinn, leigja út íbúð á meðan það er kannski enn þá í námi. Þetta er fólkið sem er að fara að borga þennan skatt. Hvað þurfa þau að gera? Lánin hafa hækkað, þau verða að eiga fyrir lánunum á íbúðunum þannig að þau hækka leigu eins og eðlilegt er og það bitnar á leigjendum.

Eiginlega öll skattamálin eiga það sammerkt að tekjur munu ekki skila sér eins og áætlað er. Þetta mun hafa afleiðingar eins og svo oft hefur verið bent á. Þetta mun hafa afleiðingar um allt land og ekki bara á þá sem verið er að skattleggja heldur líka litlu ferðaþjónustufyrirtækin. Skemmtiferðaskip boða að þau muni ekki koma jafn oft og hefur gerst áður og það hefur áhrif á þá sem hafa verið að fara með ferðamenn af skemmtiferðaskipum. Það eru endalaus dæmi í umsögnum en nánast ekkert tekið tillit til þeirra.

Hér getið þið sagt: Hér er einhver stjórnarandstæðingur sem heldur þessu fram, þetta er ekki svona. Ég á alveg erfðafjárskattinn eftir þannig að ég ætla, með leyfi forseta, að fá að detta inn í umsagnir frá sérfróðum aðilum, KPMG og Deloitte. Þetta eru aðilar sem vinna við það að skilja þessi skattamál. Ríkisstjórnin er búin að segja og ráðherrar: Já, þetta er sanngjarnt, þetta er bara markaðsverð. Nei, nei, þetta er ekki sanngjarnt. Þetta fer gegn öllum reglum sem verið er að vinna með í dag. Það er búið að gefa í skyn að þetta sé bara lítið atriði og meira að segja var ekki sett inn hækkunin sem hefur áhrif á fólk, sennilega af því að þau áttuðu sig ekki á því að þetta myndi hækka. Þetta var bara þannig að Skatturinn tapaði máli fyrir yfirskattanefnd. Skatturinn var ekki sáttur við það og það er meira að segja sagt í frumvarpinu að það sé skýringin á því að þetta er komið inn, þess vegna sé þessu breytt. Er það bara sjálfsagt að ef Skatturinn tapar máli sé lögum breytt? Stundum þarf kannski að breyta en í þessu máli kemur það skýrt fram að Skatturinn var á rangri vegferð, það kemur skýrt fram. Ég ætla að leyfa ykkur að heyra hvað umsagnaraðilar segja, líka til að benda á að beiting 71. gr. laga hefur gríðarlega slæm áhrif hér á Alþingi og það hefur ekkert með veiðigjöld að gera. Það hefur með önnur gjöld að gera sem eru núna að koma inn og það er ekki tekið tillit til umsagna. Hér segir, með leyfi forseta, í umsögn Deloitte:

„Fyrirhugaðar breytingar skv. b-lið 11. gr. frumvarpsins um mat á löndum og jörðum til „markaðsverðs“ geta falið í sér verulega hækkun erfðafjárskatts fyrir erfingja íslenskra bænda, án þess að raunveruleg verðmæti eða fjármagn sé til staðar til að greiða skattinn.

Fyrirhugaðar breytingar skv. c-lið 11. gr. frumvarpsins um hækkun á skattstofni óskráðra félaga fela í sér gróft frávik frá almennum meginreglum skatta- og félagaréttar sem gilt hafa um árabil.“

Gróft frávik — í gær sagði hæstv. fjármálaráðherra hér að þetta væri í raun og veru bara sanngirnismál. Nei, þetta er mjög ósanngjarnt mál.

Svo held ég áfram, með leyfi forseta:

„Breytingarnar fela í sér talsverða hækkun á erfðafjárskatti.“ — Þetta liggur alveg fyrir. — „Breytingarnar gætu skapað talsverða óvissu um skattalega meðferð vegna annarra skatta þar sem byggt hefur verið á sömu meginreglu. […]

Tillagan mun leiða til óskýrleika í framkvæmd því nú er lagt í hendur sýslumanns og skattyfirvalda að meta hvenær um sé að ræða „óverulegan“ mismun á bókfærðum verðmætum samkvæmt ársreikningum og markaðsvirði eigna. Líkur eru á að sama eign yrði tvískattlögð í kjölfar yfirfærslu eignar vegna arftöku.“ — Tvískattlögð en reyndar er búið að borga af þessu, mætti eiginlega segja þrískattlögð. — „Líkur eru á að erfingjar þurfi að leggja út í kostnað við öflun verðmats eða sérfræðiaðstoðar til að verðmeta óskráð félög.“

Í umsögn KPMG segir:

„Umsögn þessi snýr þó einungis að þeim hugmyndum fjármála- og efnahagsráðherra um að auka við skattlagningu vegna arfs. Lagðar eru til nokkrar breytingar á lögum nr. 14/2004, um erfðafjárskatt. Sé litið til textans í frumvarpinu hvað þetta varðar má ætla að um sé að ræða minni háttar breytingar, en svo er ekki.“

Þetta er skýrt. Svo er ekki.