fjárlög 2026.
Herra forseti. Í þessum ræðustól í gær fór ég yfir nokkur atriði sem valda mér og mörgum fleirum, eftir þeim ræðum sem ég hef heyrt, nokkrum áhyggjum. Ég hyggst halda áfram að rekja hér áhyggjur sem ég hef varðandi skatta í fjárlagafrumvarpinu. Það verður ekki gert nema stikla á mjög stóru yfir það sem ég fór yfir í gær þannig að eitthvert samhengi sé í framhaldinu. Ég geri ekki ráð fyrir að þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með hafi í sér löngun til að hlýða á heilar ræður frá því í gær þannig að það þarf að setja þetta í eitthvert samhengi.
Í talsvert löngu máli mínu í gær og í andsvörum við aðra hv. þingmenn vék ég að erfðafjárskattinum eins og hann er skrifaður inn í frumvarpið, að þeim augljósu vanköntum sem þar eru. Ber þar helst að nefna það sem sagt er um tímarammann til að gera athugasemdir við uppgjör, hann fer úr 44 dögum í sex ár. Það sjá allir, óháð þeim 2,1 milljörðum sem ríkið ætlar að sækja með þessari aðgerð, að slíkur tímarammi er algerlega galinn og mun væntanlega gera kynslóðaskipti í landbúnaði allt að því ómöguleg, a.m.k. í þeim tilfellum þar sem erfingjar eru fleiri en einn en aðeins einn tekur við rekstri búsins. Það eru mun fleiri dæmi sem hægt er að taka í þessu og ég tók einhver þeirra í gær þannig að ég ætla í sjálfu sér ekki að fara meira yfir það.
Annað sem ég nefndi hér í gær, og virðist hafa verið sett upp með svipuðu hugarfari að mínu mati og auðlindaskatturinn á síðasta þingi, varðar fjármagnstekjuskatt, sem sagt hækkun á skatti fyrir leigu. Þar á að sækja 1,6 milljarða. Þar birtist svipað hugarfar því að það er eins og eingöngu sé verið að tala til stóreignafólks sem eigi tvær, þrjár eða fjórar íbúðir og sé að raka inn einhverju fé sem vinstrimenn sjá að sjálfsögðu ofsjónum yfir, þ.e. ef einhver hefur arð fyrir fjárfestingu sína. En komið hefur fram, og er miklu alvarlegra, að þetta er líka að bíta á yngra fólk sem hefur með mikilli ráðdeild komist í þá stöðu að koma sér þaki yfir höfuðið, tekið þá ákvörðun að leigja eign sína tímabundið, til að mynda á meðan verið er að klára nám eða annað slíkt, og láta þá íbúðina reka sig á meðan og greiða jafnvel inn á höfuðstól láns. Að sjálfsögðu sýnir slíkt fyrst og fremst ráðdeild en nú verður refsað fyrir slíkt, enda skatturinn hækkaður um hvorki meira né minna en 50%.
Ég nefndi líka í yfirferð minni í gær samsköttun hjóna og þá dellukenningu, að mínu mati, að þar sé eingöngu verið að taka einhvern skattaafslátt — það er eitt tískuorðið — af hátekjufólki, hæstu tekjutíundunum. Það liggur beinlínis í orðanna hljóðan að þetta er samsköttun hjóna. Það eru hjónin, og þar af leiðandi allt heimilið, séu börn á heimilinu, sem nýtur góðs af því hafi annar aðilinn litlar tekjur en hinn meiri, auk þess sem ekki er samhliða þessu felld úr gildi sameiginleg skattaábyrgð sem væri auðvitað eðlilegt að fylgdist að.
Ég nefndi veiðigjaldið í örstuttu máli. Það var fyrst og fremst gert til að setja þá upphæð sem þar á að skila sér, sem eru u.þ.b. 7,6 milljarðar, í eitthvert samhengi við þá nýju skatta sem boðaðir eru núna. Þeir skattar eru m.a. vörugjöld á ökutæki sem eiga að nema 7,5 milljörðum, þ.e. nánast sömu krónutölu og veiðigjöldin sem hér voru rædd mjög lengi síðasta vor og sumar. Ég held þannig að það sé auðveldara fyrir hinn almenna borgara að átta sig á hvaða stærðir er um að ræða — hið mikla deilumál í fyrra, sem ég tel reyndar að sé þegar farið að hafa áhrif, ég vík kannski örlítið betur að því síðar, er nánast sama krónutala. Og þetta er bara vörugjaldið. Kílómetragjaldinu gerði ég aðeins skil í gær sem á að skila 3,3 milljörðum. Það var reyndar upphaflega kynnt sem peningalega hlutlaust, eingöngu breyting á innheimtukerfi. Það var ekki fyrr en það kom í ljós að það fór ekki í gegnum Alþingi Íslendinga að þáverandi ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, spurði: Ja, hvaðan eiga þá þessir 3 milljarðar að koma? Frá og með því viðtali hefur öllum verið ljóst að þetta er skattahækkun en ekki bara breyting á greiðslukerfi og rétt að halda því til haga því að í upphafi máls var allt reynt til að láta það líta út með öðrum hætti. Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur nú tekið þetta mál upp á sína arma til að koma því áfram. Það er rétt að geta þess, af því að ég var að nefna hér skattlagningu á ökutæki, sem mér finnst alltaf þurfa að vera með í umræðunni, og ég gerði örstutt skil í gær, að nú þegar eru u.þ.b. 80 milljarðar innheimtir af ökutækjum en innan við 50 milljarðar skila sér til uppbyggingar samgöngukerfisins. Hér kemur aftur fram það sem ég hef ítrekað bent á og margir aðrir, m.a. samflokksmenn mínir í Miðflokknum, að vandinn er ekki á tekjuhliðinni eins og það er kallað, en við skulum nota orðið skattahliðinni því að þessar tekjur heita alls konar nöfnum en eru í raun og veru flestar hverjar bara venjulegir skattar sem fá ákveðin nöfn til að útskýra fyrir hvað þeir standa. En skattar eru það samt.
Þá stekk ég örsnöggt yfir í þá áherslu sem vék að því að þessar tekjur, það er skattar, þyrftu að vera hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu eða heildarþjóðarframleiðslu og ættu að vera í kringum 1,7%. Þetta þykir mér vera delluhugmynd einfaldlega vegna þess að ég held að það sé vart hægt að fara hér út í samfélagið og finna einstaklinga sem trúa því að verði verulegt fall í heildarþjóðarframleiðslu verði skattarnir lækkaðir. Ég held að við vitum öll að það mun ekki gerast.
Þá vék ég örstutt að innviðagjaldinu á skemmtiferðaskipin sem upphaflega var boðað af fyrri ríkisstjórn, upp á 2.500 kr. fyrirvaralaust með hrikalegum afleiðingum hringinn í kringum landið. Síðan komu upp hugmyndir um að lækka það niður í 2.000 kr. en niðurstaðan, eftir ítarlega yfirferð á því máli, er að fara með það gjald í 1.600 kr. Ég nefndi þetta rétt aðeins til að koma því á framfæri að ég tel að skaðinn hafi orðið það mikill að eina leiðin, til að mynda með fyrirmynd frá Alaska, til að lenda ekki í langvarandi niðursveiflu í þessum geira hefði verið að fresta málinu í a.m.k. tvö ár þar sem þessi fyrirtæki selja flest hver ferðir sínar ár til tvö ár fram í tímann. Það hefði gefið þessum fyrirtækjum tækifæri til að setja þennan aukakostnað inn í sitt verðlag og þar af leiðandi hefði þetta högg ekki komið á fyrirtækin. Að mínu mati hefði það verið ólíklegra til að valda slíkum búsifjum sem nú raungerast.
Samanlagt er það sem ég hljóp yfir u.þ.b. 25 milljarðar og þetta þarf auðvitað að setja í samhengi við stöðuna í íslensku atvinnulífi þar sem hvert óveðursskýið á fætur öðru hefur verið að hrannast upp. Nægir þar að nefna íslenskan iðnað, íslenskan sjávarútveg eða íslenska ferðaþjónustu og svo auðvitað íslenskan landbúnað sem fær einstaka sinnum einhverja athygli hér í þessu ræðupúlti. En þegar farið er að gera áætlanir þá virðist hann einhvern veginn gleymast því að það eru verulegar hækkanir í þessum fjárlögum sem koma einmitt niður á landbúnaðinum. Allir sem tjá sig hér inni hafa tjáð sig á þann hátt að þeir hafa verið sammála því að íslenskur landbúnaður hafi í allmörg ár verið að fara í gegnum erfitt skeið. Ég tel því að það sé kannski ekki skynsamlegt að auka byrðar á hann, að ónefndum öðrum frumvörpum sem hér eru boðuð er varða uppbrot á heimildum til samvinnu sem í sumum tilfellum, til að mynda í mjólkinni, má rekja aftur til 2004 og er líklega lykillinn að því hve vel gekk lengi vel í þeim hluta landbúnaðarins.
Það má auðvitað velta því fyrir sér hvort slíkar breytingar í skattkerfinu, það er skattahækkanir hér og þar, og sumar hverjar allverulegar, séu það sem íslenskt samfélag, íslenskt atvinnulíf, þarf á að halda til að flýta fyrir því að við náum viðspyrnu aftur og tryggjum í það minnsta mýkri lendingu. Nú stefnir í að þetta verði ekki það sem stundum er kallað kólnun í hagkerfinu með mjúkri lendingu heldur stefnir jafnvel í frost með frekar harkalegri lendingu. Ef þeim sem hér starfa, ásamt mörgum öðrum aðilum úti í samfélaginu, auðnast ekki að taka ákvarðanir sem draga úr líkum á slíku höggi þá er útlitið ekki gott.
Þetta var örstutt yfirferð yfir það sem ég talaði mest um í gær. Mér finnst líka í lagi að setja þetta í samhengi, herra forseti, við það hvernig þessi ríkisstjórn verður til. Hún verður að sjálfsögðu til eftir kosningar, eftir að þeir flokkar sem í henni sitja höfðu sumir fengið ágætt fylgi, aðrir jafnvel bara gott. Þar af leiðandi má líta svo á að ríkisstjórnin hafi fengið allgott umboð. Það var ekki hvað síst út á tvö meginþemu, hugsanlega þrjú, sem glumdu alla kosningabaráttuna. PR-lega séð algerlega frábærlega fram sett og eðlilega var væntingastuðullinn í samræmi við þá PR-mennsku, þ.e.: Við munum ekki hækka skatta á venjulegt fólk. Þetta verður ekkert skýrara, hæstv. forsætisráðherra. Evrópumálin voru bara ekkert á dagskrá, ekki forgangsmál. Það þriðja, sem var svipað og þetta með hækkun skatta á venjulegt fólk, var: Við munum ekki hækka skatta á fólk og fyrirtæki. Ég held að þessir þrír ásar í kosningabaráttunni hafi verið lykillinn að þeim árangri sem náðist. En svo þarf að standa við þetta. Það gengur, svo að kurteislega sé orðað, vægast sagt brösuglega. Í stað þess að hækka ekki skatta á venjulegt fólk eru nær allar skattahækkanir sem boðaðar eru í þessum fjárlögum akkúrat það, skattahækkanir á venjulegt fólk og fyrirtæki og ekki hvað síst á fyrirtæki í geirum þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki eru hvað algengust, til að mynda í ferðaþjónustunni. Þar er mikið af þessum litlu fyrirtækjum með einn starfsmann eða fjóra til fimm starfsmenn. Þar er stór hluti bílaflotans sem fær á sig eitt þyngsta höggið í þessum fjárlögum.
Herra forseti. Þetta eru ofsaleg vonbrigði, svo að það sé sagt. Ég er enginn sérstakur aðdáandi þessarar ríkisstjórnar og vonbrigðin eru ekki þess vegna. Þetta eru fyrst og fremst vonbrigði fyrir land og þjóð. Þetta fjárlagafrumvarp eru vonbrigði fyrir land og þjóð. En hvaða leið var fundin til að komast í gegnum þennan skafl? Auðvitað vita allir þessir hæstv. ráðherrar, sem bera ábyrgð á sínum málaflokkum, að þetta eru skattahækkanir. Þeir vita það allir. Það er enginn starfandi í þessum meiri hluta sem ekki hefur það mikinn skilning á opinberum fjármálum að þeim sé ekki ljóst að þetta eru skattahækkanir. Og hvaða leið var valin? Sú leið var valin, eflaust með aðstoð einhverra frumlegra íslenskufræðinga, að finna ný nöfn á þetta. Við erum að taka til, herra forseti. Það er eitt nafn yfir það að hækka skatta, að taka til. Ég sá fyrir mér laugardag hjá fjölskyldu heima í stofu að fara yfir gólfin og þurrka af, en nú þýðir þetta að hækka skatta. Leiðrétting er enn eitt orðið, herra forseti. Við erum hætt að hækka skatta. Ef mat þeirra sem ráða er það að skattarnir hafi á einhverjum tíma verið of lágir og þurfi að vera hærri þá er ferlið ekki að hækka þá heldur að leiðrétta þá. Það heitir skattahækkun, herra forseti. Aðhald á tekjuhliðinni er þó mitt uppáhaldshugtak. Það er algerlega útpælt og frábært. Ég held að stærstur hluti þjóðarinnar, sem fylgist með opinberri umræðu og var að heyra þetta í fyrsta skipti, hafi hreinlega sperrt eyrun við útvarpstækið, gónt á tölvuskjáinn eða misst kjálkann niður á bringu fyrir framan sjónvarpið. Og þetta varð einhvers konar uppáhaldshugtak. Aðhald á tekjuhliðinni þýðir skattahækkun, herra forseti.
Á sínum tíma, þegar ég var yngri og fylgdist með pólitískri umræðu í sjónvarpi, þá komu ráðherrar í viðtöl og töluðu linnulaust um verga þjóðarframleiðslu. Ég spurði sem unglingur fleiri en einn og fleiri en tvo: Hvað þýðir þetta? Og flestir hinna fullorðnu sem ég talaði við á þeim tíma vissu það ekki. Það var akkúrat tilgangurinn, sami tilgangur og með aðhald á tekjuhliðinni. Það var til þess að það væri ekki eins óþægilegt að tala um hlutina. Verg þjóðarframleiðsla er bara heildarþjóðarframleiðsla. Af hverju notum við ekki bara það orð? Það útskýrir sig algerlega sjálft. Nei, pólitíkin hefur tilhneigingu til að reyna að fegra hlutina og hefur líka tilhneigingu til að láta þann sem er að tjá sig hverju sinni virka svolítið vel að sér.
Breyting á innheimtukerfi er enn ein uppfinningin. Nú á að sækja yfir 3 milljarða — burt séð frá öllum rökstuðningi, ég er ekki að tala um rökstuðninginn — aukalega við þá 7,5 sem ég nefndi áðan, í vasa ökutækjaeigenda, óháð því hvort sá bíll er í eigu lögaðila eða einstaklings. Það var upphaflega kynnt sem breyting á innheimtukerfi. Það er reyndar oflof að þakka núverandi ríkisstjórn þá snilli því að það var sú sem síðast sat sem fann upp á þessu hugtaki. Þegar fyrst var farið að kynna kílómetragjaldið var það „peningalega hlutlaus breyting á innheimtukerfi“. Það var ekki fyrr en það kom í ljós að málið fór ekki í gegnum þingið sem þáverandi ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, missti út úr sér í viðtali: Hvar á þá að finna þessa 3 milljarða? Þá varð þjóðinni ljóst að breyting á innheimtukerfi þýddi skattahækkun. Annað gott hugtak — ég fer nú að verða búinn með þetta en mér finnst mikilvægt að þetta komist til skila þannig að fólk átti sig á því hvað verið er að tala um — er innviðagjald. Frábært hugtak, hljómar svo vel því að það er búið að tala svo lengi um innviðaskort og innviðaskuld. Þá tökum við upp innviðagjald sem stendur undir þeim skorti. En þetta er skattur. Þetta er skattur, herra forseti, og það sem meira er hann kom fyrirvaralaust með hrikalegum afleiðingum hringinn í kringum landið. Ekki er útséð enn hvernig það fer. Þrátt fyrir að farið sé með gjaldið niður í 1.600 kr. á hvern einasta farþega, ekki á káetu og ekki á klefa heldur á hvern einasta farþega, þá er skaðinn líklega skeður.
En það ber að hæla því sem gott er. Það ber að hæla þeirri hugmyndaauðgi að finna upp öll þessi orð og mig grunar að þessu sé hvergi nærri lokið, því miður. En ég mun leitast eftir því, herra forseti, í hvert skipti sem ég heyri nýtt hugtak að koma hingað upp og reyna að útskýra hugtakið ef ég tel að um skatt sé að ræða. Við getum svo verið sammála eða ósammála skattheimtunni, en tölum um hlutina eins og þeir eru.