157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:02]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Ég held að það sé mjög gott að rifja aðeins upp hvað var sagt fyrir kosningar, sem voru fyrir um ári síðan, og hvað er síðan gert. Ég verð að viðurkenna að ég er sammála hv. þingmanni um að skilaboð þessara stjórnarflokka fóru mjög skýrt í gegn; þegar maður upplýsir það, sem er staðfest og skjalfest, að aukning ríkisútgjalda sé 143 milljarðar milli fjárlaga þá hvá margir því að það er eitthvað sem fólk átti ekki von á.

Hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson er úr landsbyggðarkjördæmi og þekkir vel til líka af sínum fyrri störfum um atvinnulífið og nefndi hér aðeins landbúnaðinn. Hv. ríkisstjórn er harðahlaupum frá þeirri skattahækkun sem hún kynnti ekki en setti í frumvarp inni í efnahags- og viðskiptanefnd og þá er ég að vísa í erfðafjárskattinn. Ég fullyrði það að hvergi í heiminum, alla vega í þeim löndum sem við berum okkur saman við, kæmist ríkisstjórn upp með svona vinnubrögð. Þar eru menn í fullri alvöru að halda því fram að það sé ekki skattahækkun þegar þú breytir reiknireglu þannig að það sem þú borgar skattinn af, sú upphæð, hækki. Það mun koma illa niður á öllum. En augljóst er þó að þegar menn fara að taka búrekstur, menn nefna sérstaklega sauðfjárbúskap, og við gæfum okkur að það væri einn erfingi sem ætlaði að halda áfram sauðfjárbúskapnum sem ekki skilar miklu. En þegar hann þarf að reikna jörðina á markaðsvirði, segjum að það væri jörð sem gæti talist vera nokkur hundruð milljóna virði, segjum bara 300 milljóna virði, sem skilar ekki miklu af sér, (Forseti hringir.) þá þarf viðkomandi að borga 30 milljónir í erfðafjárskatt. Hvaða áhrif heldur hv. þingmaður að þessi hækkun hafi á kynslóðaskipti og atvinnugreinina?