157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:07]
Horfa

Anton Sveinn McKee (M):

Frú forseti. Það er mér mikill heiður að flytja mína jómfrúrræðu á Alþingi Íslendinga í dag. Undanfarinn áratug hef ég notið þeirra forréttinda að vera fulltrúi Íslendinga á alþjóðasviðinu þar sem ég reyndi af fremsta megni að lyfta upp heiðri og sóma allra Íslendinga. Nú hafa orðið kaflaskil hjá mér í lífinu og stíg ég hér inn sem fulltrúi Íslendinga á Alþingi en markmið mitt hefur ekkert breyst; að lyfta upp landi og þjóð.

Ég vil ræða sérstaklega áhrif fjárlagafrumvarpsins á ungt fólk og fjölskyldur í landinu. Það er miður að ekki sé meira gert til að styðja við þau í þessu efnahagsástandi sem nú ríkir í landinu. Ungt fólk kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn vegna hás vaxtastigs. Þrengt er að leigumarkaðnum og húsnæðispakkinn virðist að mestu leyti snúast um aukin ríkisumsvif á húsnæðismarkaði. Skattahækkanir á venjulegt fólk ganga svo yfir með breytingum á erfðafjárskatti og t.d. afnámi samsköttunar hjóna.

Ef við byrjum á að horfa á stöðuna í víðara samhengi þá var auðvitað einstakt ástand í Covid-19 faraldrinum. Þá voru sögulega há ríkisútgjöld og lántaka, sem er mjög skiljanlegt miðað við aðstæður þess tíma. En það sem ég á ótrúlega erfitt með að skilja er að í stað þess að þetta hafi verið toppur á ríkisútgjöldum Íslendinga hefur þetta að einhverju leyti orðið að nýju gólfi sem byggt er ofan á. Samkvæmt öllum þeim hagfræðikenningum sem ég hef kynnt mér mætti búast við því að ráðist yrði í sterkar aðhaldsaðgerðir til að koma einmitt í veg fyrir verðbólgu og hagræða svo innstæða sé til fyrir næstu ófyrirsjáanlegu áföll. Ekki er hægt að sjá að því sé fylgt hjá ríkisstjórninni og því kemur ekki á óvart í þessu ástandi að verðbólgudraugurinn heldur áfram að gera okkur lífið leitt.

Það má segja að loforð tveggja ríkisstjórnarflokka um að hækka ekki skatta og ráðast á verðbólguna hafi verið það sem almenningur kaus þá út á og vildi sjá þá ráðast á. Almenningur treysti þeim til að munda sleggjuna og koma efnahagsástandinu aftur í lag. Ég get ekki séð hvernig þeir standa við þau loforð með þessum fjárlögum. Í stað þess að sýna aðhald og stöðugleika og skila hallalausum fjárlögum til að byrja að vinna á skuldastöðu ríkissjóðs var haldið áfram að fara í lántöku upp á 82 milljarða kr., skila halla á fjárlögum upp á gróflega 27 milljarða kr., auka skattlagningu á það sem stjórnin kallar „óvenjulegt“ fólk upp á 25 milljarða kr. og til að bæta ofan á þetta er aukning á ríkisútgjöldum rúm 10% eða 140 milljarðar kr.

Nú hefur verið skilað halla á ríkissjóð síðastliðin átta ár. Á seinustu sex árum hafa skuldir aukist um 1.400 milljarða og þær hafa þrefaldast á síðastliðnum átta árum. Það má aldrei gleyma því og er ekki sagt nógu oft hér í sal Alþingis að skuldaaukning í dag er skattlagning á framtíðarkynslóðir. Hér á landi virðist vera hægt sé að hækka skatta á almenning linnulaust svo lengi sem það sé gert í nógu litlum skrefum og leggja á hækkanir sem særa en sjá til þess að almenningi blæði aldrei út.

Þetta er ekki svona alls staðar. Nýverið í Búlgaríu tók Z-kynslóðin sig saman, þvert á pólitíska flokka, og mótmælti fjárlögum ríkisstjórnarinnar sem innihéldu skattahækkanir á almenning og útgjaldaaukningu í almannatryggingum. Þetta varð til þess að ríkisstjórnin bakkaði með áform sín. Ég átta mig alveg á því að ástandið á Íslandi og í Búlgaríu er ekki hið sama en það sem ég sakna samt að sjá er að ungt fólk, fólkið sem mun erfa þetta land, láti ekki að sér kveða í meira mæli og skilji og finni fyrir þeim slagkrafti sem þau virkilega hafa. Við í Miðflokknum finnum þó fyrir miklum meðbyr frá þessum kynslóðum enda er ungt fólk byrjað að sjá í gegnum slagorðin og umbúðirnar. Þau vilja innihald, eitthvað raunverulegt.

Áhyggjuefni er einnig að við stöndum í dag frammi fyrir breyttum forsendum og kólnun í efnahagskerfinu. Það er ljóst að vegna verri stöðu er ekki er hægt að reiða sig á það að við náum að vaxa út úr vandanum og forsendur fjárlaga haldist. Nóg er að nefna PCC á Bakka, Norðurál á Grundartanga og fall Play. Atvinnuleysi er að aukast og fjöldi einstaklinga á endurhæfingarlífeyri hefur einnig aukist. Því er ekki hægt að ganga áfram með þeirri vissu að tekjur ríkisins muni haldast í þessum fjárlögum og hagvöxtur verði eins. Þar af leiðandi mun stöðugleikareglan — sem svo skemmtilega vill til er hægt að nota í að auka útgjöld svo lengi sem skattlagt er á móti — ekki halda. Nú er það svo að vaxtakostnaður ríkissjóðs er orðinn 125 milljarðar og stendur sem annar stærsti útgjaldaliðurinn hjá íslenska ríkinu sem er hærri kostnaður en rekstur Landspítalans. Þetta ástand má ekki líðast lengur og það þarf að fara að hagræða betur í rekstri. Þessi hái vaxtakostnaður leiðir til þess að það hægist á innviðauppbyggingu, einmitt á kostnað framtíðarkynslóða.

Í greinargerð nefndarálits meiri hluta hv. fjárlaganefndar er sagt frá því að tekjur ríkisins séu með svipuðu móti og síðast þegar ríkissjóður var rekinn hallalaus. Ég verð nú að draga það í efa og spyrja hvernig það standi á því að á milli 1. og 2. umræðu sé verið að tvöfalda hallann. Ég spyr: Hvar er aðhaldið? Hvar er hugrekkið sem þarf til að skera niður? Því jú, það þarf hugrekki til að ráðast í þær óvinsælu aðhaldsaðgerðir sem þarf og eru nauðsynlegar í dag. Það þarf hugrekki til að munda sleggjuna og það þýðir ekki að guggna þegar á hólminn er komið. Það þýðir ekki að segjast ætla að negla niður vexti í kosningavídeóum og vera bara með hugrekki þá.

Ef við förum í einstaka aðgerðir þá er ekki þar að finna mikla meðgjöf með unga fólkinu og fjölskyldum landsins. Ef við förum í húsnæðismálin þá hafa margir fjármálaráðgjafar landsins mælt gegn hlutdeildarlánum ríkisins en þvert á móti ákveður ríkið að gefa í og auka umsvif ríkisins á húsnæðismarkaði. Erfitt er að sjá hvernig ríkisútgjöld og fjárlög munu lækka verðbólguna í því magni sem þörf er á og hafa hagspár bankanna spáð 3,7% verðbólgu til ársins 2027. Með þessa verðbólgu og markmið Seðlabankans mun hann því neyðast til að halda stýrivöxtum háum sem gerir ungu fólki nánast ómögulegt að komast inn á núverandi húsnæðismarkað og enn þá erfiðara þeim ungu fjölskyldum sem vilja stækka við sig.

Meðan ríkið er að auka sína hlutdeild á húsnæðismarkaði er þrengt að venjulegu fólki á leigumarkaði. Skattur af leigutekjum á að hækka úr 11% upp í 16%, sem er einungis 50% hækkun á óvenjulegt fólk, flokkast víst ekki undir venjulegt fólk sem er á leigumarkaðnum. Þessar skattahækkanir munu leiðast beint út í verðlag og lenda á leigutökum. Á sama tíma og skattleggja söluhagnað á leiguíbúðum upp í rjáfur. Það er í raun verið að festa leigusala inni, því af hverju ættir þú að vilja selja þegar þú getur bara hækka leiguna og sett út í verðlagið? Ríkisstjórnin ætti miklu frekar að beita sér fyrir því að afnema vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins, leyfa sveitarfélögunum að brjóta nýtt land, bakka með of mikla þéttingu byggðar í gegnum borgarlínuna og leyfa markaðnum sjálfum að jafna þetta ástand út.

Ef við lítum til heimilisbókhaldsins er afnám samsköttunar hjóna enn ein aðförin að fjölskyldunni. Þetta hefur bein áhrif á 6% íbúa landsins, rétt rúmlega 22.000 einstaklinga, sem eru víst enn og aftur bara óvenjulegt fólk sem á nú að kreista úr 2,8 milljarða aukalega. Ef við lítum til hækkunar vörugjalda á bensín- og dísilbílum og kílómetragjalds þá er það ekkert nema skattahækkun og sérstaklega á þá sem hafa minnst á milli handanna og millistéttina. Láglaunafólk og millistéttarfólk býr ólíklega við þann munað að vera með hleðslustöð heima hjá sér og er því að öllum líkindum að fara að kaupa jarðefnaeldsneytisbíl í núverandi ástandi. Á sama tíma munu vörugjöldin leiða til hækkunar á nýskráðum bifreiðum og það mun, út frá lögmálum hagfræðinnar, líka ýta upp verði á notuðum bifreiðum sem ungt fólk leitar sérstaklega eftir, sérstaklega jarðefnaeldsneytisbílum. Þetta er ekkert annað en týpískur stjórnlyndisskattur. Ríkið á ekki að vera að skipta sér af því á hvernig bifreiðum fólk er að keyra og þegar þær aðstæður eru til staðar að það er hagkvæmara að fara yfir á rafbílinn munu allir gera það eða flestir, eftir aðstæðum auðvitað. Að auki er kílómetragjaldið ekkert nema hreinn og beinn landsbyggðarskattur og mun einnig skerða samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar.

Á meðan þessi útgjöld hækka á venjulegar fjölskyldur vegna skattheimtu í vegamálum sem náði 78 milljörðum á seinasta ári, fóru einungis 50 milljarðar í að bæta vegasamgöngur og byggja upp vegakerfið. Hvað er fólk að borga þessa skatta í? Sömu spurningar má spyrja um loftslagsskatta, sem má gera ráð fyrir að séu í kringum 25 milljarðar kr., sem fara oft í verkefni þar sem árangursmælingar eru ekki til staðar.

Svo er það erfðafjárskatturinn, hann á að hækka. Þeir sem eru svo óheppnir að hafa erft eignir af duglegum foreldrum eða öfum og ömmum þurfa nú að borga 22% af markaðsvirði eignarinnar og gera þeim erfiðara fyrir að erfa eignina. Þetta er peningur sem þegar hefur verið greiddur skattur af. Þetta er bara einföld tvískattlagning og ætti erfðafjárskattur ekki að vera til staðar á Íslandi, það hafa önnur Norðurlönd gert og við ættum að taka þau okkur til fyrirmyndar. Það sem mér finnst skemmtilegast við þetta er að í utanríkismálum er oft mikill sigur að vera með tvísköttunarsamninga við erlend ríki til að sjá til þess að einstaklingur sem vinnur í báðum löndum lendi ekki í því að vera tvískattaður. En svo þegar kemur að andláti er öll þau prinsipp farin.

Og ekki hjálpa eingreiðslur upp á 2 milljarða frá hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra unga fólkinu. Nú á að greiða 2 milljarða, sem hefðu getað farið í að lækka skuldir eða gefa unga fólkinu meðgjöf, til 36.000 einstaklinga, þeir fá eingreiðslu að upphæð 73.990 kr. Auðvitað er þetta vafið í jólapappír til að blekkja fólk af því að þessi hópur fólks í landinu fær nú þegar desemberuppbót og er þar engin breyting á. Þessi eingreiðsla á rætur sínar að rekja til Covid-tímans fyrir fimm árum síðan og einhvern veginn lifa þær enn. Með leyfi forseta, ætla ég að fá að vitna í hagfræðinginn Milton Friedman, sem sagði: Það er ekkert til sem heitir tímabundin útgjöld hjá ríkinu. Á þessi aðgerð vel við þau orð.

Að auki þarf virkilega að fara að skoða forgangsröðun þegar kemur að lýðheilsu landans. Það virðist vera markmiðið hjá ríkisstjórninni að taka á móti fólki þegar allt er á versta veg farið í heilbrigðiskerfinu í staðinn fyrir að grípa það fyrr og fara í stórsókn í lýðheilsu og íþróttamálum. Í nýlegri skýrslu kom í ljós að við stöndum okkur verst af öllum Norðurlöndunum þegar kemur að yfirþyngd og offitu meðal barna yngri en 18 ára. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur verið vanfjármagnað lengi, eins og kom fram í umsögn þess um fjárlagafrumvarpið. Það má velta því fyrir sér hvort það sé einhver fylgni milli þess að börnin okkar fyrir áratug síðan voru 19% í þessum flokkum, annaðhvort yfirþyngd eða ofþyngd, en eru í dag í 26% í þessum flokkum, sem er hækkun upp á 7 prósentustig og hæst af öllum Norðurlöndunum — fylgni við að þetta er að gerast á sama tíma og foreldrar kvarta yfir háum kostnaði við íþróttaiðkun og unglingar sem við sendum með landsliðum okkar til að keppa undir fána Íslands þurfa oftar en ekki að greiða með sér og hafa verið mörg dæmi um það að það komi í veg fyrir að unga fólkið okkar sækist eftir því að vera framúrskarandi. Á sama tíma í núverandi efnahagsástandi þar sem margir eru að hagræða einmitt í heimilisbókhaldinu finnur maður sjálfur fyrir því að það er erfiðara að kaupa hollan og lífrænan mat og ég skil ekki af hverju afnám virðisaukaskatts á lífrænan mat, til að stuðla að heilbrigði og lýðheilsu þjóðar okkar, sé ekki innifalið í þessum fjárlögum.

Boðun um tvöföldun veiðigjalda hefur þegar haft afleiðingar og hafa hundruð manns misst vinnuna og fyrirtæki á landsbyggðinni draga saman í rekstrinum. Auðvitað borgar almenningur á landsbyggðinni. Oft hefur verið gagnrýni hér í þingsal á stóru sjávarútvegsfyrirtækin en þetta frumvarp mun bara ýta undir þau, stækka þau enn frekar.

Þetta er langur listi sem ég er búinn að fara yfir hér og ég get ekki séð hvernig neinar af þessum aðgerðum eru að fara að hjálpa ungu fólki að stofna fjölskyldu og standa á eigin fótum. Almenningur í landinu borgar fleiri og hærri skatta en stóra spurningin er: Hvað fá þau í staðinn? Finnur landinn að hann sé að fá betri þjónustu og styttri biðlista í heilbrigðiskerfinu? Finnur landinn fyrir betri vegasamgöngum eða finnur hann fyrir betri og bættum árangri í menntamálum? Ég vil meina að svo sé ekki og við eigum ekki að halda áfram og einblína á það, eins og gert er í þessum fjárlögum hæstv. ríkisstjórnar, að gera atlögu að sparnaði einstaklinga og fyrirtækja sem nota hann einungis til að auka lífsgæði sín og fjárfestingu í landinu. Þjóðin og þá sérstaklega unga fólkið á betra skilið en það sem er í þessum fyrstu fjárlögum hæstv. ríkisstjórnar.