157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:25]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Antoni Sveini McKee fyrir afbragðsræðu og góða yfirferð. Ég óska honum til hamingju með að hafa flutt hér sína fyrstu ræðu á þinginu. Það er mikilvægt fyrir okkur hér á þinginu að fá ungt fólk inn í þennan sal með tengingu við sína grasrót sem er þá yngra fólk og hvað þá að fá hér afreksíþróttamann inn í salinn. Þeir sem hafa ekki fetað þá slóð að ná árangri í íþróttum eða tónlist eða öðru átta sig ekki á því hvaða vinnu þetta fólk hefur lagt á sig. Það eru ekki hundruð, það eru þúsundir klukkustunda sem íþrótta- og tónlistarfólk og annað afreksfólk hefur lagt á sig. Því fagna ég því sérstaklega að fá hv. þingmann inn á þing. Hv. þingmanni er umhugað um húsnæðismál, eðlilega, af því að þau eru í ákveðnum ólestri hér á landi. Í borginni og kannski í sveitarfélögunum í kring, aðallega í borginni, er verð á íbúðum orðið mjög hátt. Lóðaverð er hátt. Fólk sem hefur verið að leigja út eignir er nú verið að skattleggja meira þannig að það verða færri leigueignir á markaðnum.

Mig langar bara að spyrja hv. þingmann, því hann talaði um að brjóta land: Hvernig sæi hann það fyrir sér að land yrði brotið og vaxtarmörkunum breytt, hvernig myndi íbúðamarkaðurinn þróast, að hans mati, með tilliti til þess að við gætum byggt fleiri íbúðir? Hvernig íbúðir heldur hann að ungt fólk myndi vilja kaupa?