fjárlög 2026.
Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri fyrir ótrúlega falleg orð. Maður roðnar bara í sætinu. Þetta eru góðar spurningar og ætli það fari ekki bara inn á það að ríkið á ekkert að vera að þvælast fyrir því hvaða íbúðir í raun eftirspurn er eftir og verktakar vilja byggja. Auðvitað er í einhverjum tilfellum gott að þétta byggð en það er alveg augljóst að vaxtarmörkin á höfuðborgarsvæðinu hafa haldið aftur af eðlilegri þróun á markaðnum í dag og þá sérstaklega þegar borg og bæir hafa verið að nýta lóðagjöldin til að fjármagna sig sjálf. Svo hvernig sæi ég þetta fyrir mér? Einmitt bara að ríkið hætti að þvælast fyrir og að sama skapi að ríkið lækki ríkisútgjöld til að ná niður vaxtaumhverfinu til að verktakar geti einmitt farið í frekari fjárfestingu og ungt fólk hafi þá svigrúm til að komast inn á markaðinn.