157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:29]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Antoni Sveini McKee fyrir gott svar við andsvari mínu. Mig langar í mínu seinna andsvari að beina sjónum mínum að þáttum sem hv. þingmaður minntist á í ræðu sinni. Það er erfðafjárskatturinn, að það sé verið að hækka erfðafjárskatt en hv. þingmaður tók það fram að það gæti haft þau áhrif að þú eigir kannski fjölskyldufyrirtæki sem fjölskyldan hefur lagt allt sitt í og byggt frá grunni, fyrirtækið er orðið einhvers virði, síðan þegar fyrirtækið þarf að ganga á milli kynslóða þarf að borga þennan skatt, 22% skatt út frá markaðsvirði en ekki því sem er í gangi í dag. Hvað heldur hv. þingmaður að geti tapast þarna við það að næsta kynslóð, sem er kannski full af þekkingu varðandi rekstur fyrirtækisins, geti ekki borgað þennan skatt og þurfi því kannski að selja fyrirtækið? Þá nýtist kannski ekki þekkingin sem er innan fjölskyldunnar til að halda áfram að reka fyrirtækið. Hvaða áhrif heldur hv. þingmaður að þessi skattur geti haft á t.d. rótgróin fjölskyldufyrirtæki? Er það til góðs eða ills að setja þennan aukna skatt á?