fjárlög 2026.
Hv. þm. Jón Pétur Zimsen, takk kærlega fyrir fyrirspurnina. Við getum kannski horft til Bretlands þar sem margir bændur eru að lenda í svipuðum málum, ekki alveg eins, sem veldur því að næsta kynslóð getur ekki haldið búskapnum áfram. Í stað þess að fjölskyldufólkið myndi halda áfram rekstrinum þá gæti það gerst að búið rynni bara til stórfyrirtækja. Ég held að það ætti að vera markmið okkar á Alþingi og Íslendinga að hafa fjölbreytt rekstrarform á sem flestu, hvort sem verið er að tala um fjölskyldufyrirtæki eða býli. Einhver samþjöppun getur verið af hinu góða, stundum ekki, en ég er hræddur við að þetta myndi leiða til of mikillar samþjöppunar á röngum forsendum. Fyrst og fremst á enginn erfðafjárskattur að vera á Íslandi af því að það er bara hrein og bein tvísköttun.