fjárlög 2026.
Herra forseti. Það er sígrænt deilumál stjórnmálanna hvort skynsamlegra sé fyrir hið opinbera að fjármagna nauðsynlega samneyslu með lægri sköttum og minni ríkisumsvifum eða aukinni skattbyrði og opinberu valdboði. Það er sennilega borin von að hið eiginlega vinstri og hægri, með þeirri einföldun sem sú skilgreining býður upp á, nái saman í þeim efnum á næstunni. Ég held að þessi umræða sem við eigum hér þessa daga, um fyrstu fjárlög nýrrar ríkisstjórnar fyrir árið 2026, beri það með sér. Við erum þó vonandi sammála um að það er ábyrg efnahagsstjórn sem er lykillinn að farsælu samfélagi eða kannski erum við því miður ekki alveg öll sammála um það þar sem það fæst ekki nema að agi sé í ríkisútgjöldum, skýr forgangsröðun í þágu grunnþjónustu, einfalt regluverk og gagnsæi sem tryggi atvinnulífinu súrefni til vaxtar og þjóðinni betri lífskjör til framtíðar. Það ættu að vera leiðarstefin en því miður fer ekki nægilega mikið fyrir þeim í þessu fyrsta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Nú hefur ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins starfað í nærri heilt ár. Ríkisstjórnin hefur lagt fram og fengið sína fyrstu fjármálaáætlun samþykkta og vonast nú eftir því að fá sín fyrstu fjárlög samþykkt hér. Það sem er áhugavert, frú forseti, er að hæstv. forsætisráðherra lofaði því í kosningabaráttunni að hún skyldi negla niður vexti með sleggju en sú sleggja er því miður hvergi sjáanleg. Verðbólgan er enn viðvarandi og ekki er útlit fyrir að hún nálgist markmiðið að neinu ráði í bráð. Vaxtalækkunarferlið stöðvaðist og hægðist á því í maí þótt Seðlabankinn hafi tilkynnt um vaxtalækkun á síðasta fundi peningastefnunefndar í nóvember. Sú vaxtalækkun kom því miður ekki til af góðu heldur vegna mikillar óvissu á lánamarkaði í kjölfar vaxtadóms Hæstaréttar sem hefur gert fólki enn erfiðara en áður að eignast eigið heimili, sérstaklega ungu fólki. Leiðin sem ríkisstjórnin virðist ætla að marka sér er leið stóraukinna ríkisútgjalda, hærri skatta, aukins hallareksturs og skuldsetningar. Kosningaloforð, um að hækka ekki skatta á almenning og venjulegt fólk, hafa verið þverbrotin undir formerkjum, ja, hinum ýmsu formerkjum, t.d. leiðréttingar, réttlætis, sanngirni, aðhalds á tekjuhlið, og glufulokana.
Mér finnst rétt, frú forseti, að nefna í þessu samhengi að hæstv. ríkisstjórn sem situr nú tók við góðu búi. Á síðustu tveimur kjörtímabilum reyndi virkilega mikið á rekstur ríkisins vegna þeirra umfangsmiklu ytri áfalla sem dundu yfir þjóðina. Við vitum öll hvaða áföll það voru. Þetta var heimsfaraldur kórónuveiru, jarðhræringar á Reykjanesi, gjaldþrot flugfélagsins WOW sem var mjög víðfeðmt, fyrir utan stríðið í Úkraínu. Þegar kemur að slíkum áföllum er eðlilegt að ríkissjóður geri það sem hægt er til að milda höggið á heimilin og fyrirtækin í landinu. Um það hefur þingheimur ætíð verið sammála. Það er því eilítið undarlegt, frú forseti, að undanfarið hafa sumir í núverandi stjórnarmeirihluta séð tilefni til að gera lítið úr viðbragði við þeim áföllum og talað um að á þessum tíma hafi ríkt óstjórn í ríkisfjármálum, og nú er ég að hafa beint eftir. Til að mynda voru þessi orð látin falla undir sérstakri umræðu við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, hv. þingmann og formann Sjálfstæðisflokksins, um stöðu efnahagsmála á Alþingi nýverið þar sem hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir sagði að síðasta ríkisstjórn hefði, með leyfi forseta, „rekið ríkið á yfirdrætti, tekið lán og pumpað út peningum og þannig misst stjórn á efnahagsmálunum.“ Það sem er áhugavert er að þegar áföllin dundu yfir íslenska þjóð á sínum tíma kallaði hún sjálf, hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir, sem ekki var forsætisráðherra þá, hvað hæst eftir því að ríkið gerði enn meira og eyddi enn meira fjármagni en þá var gert. Núna, frú forseti, kallar hún það að hafa „pumpað út peningum, rekið ríkið á yfirdrætti og misst stjórn á efnahagsmálunum.“
Ég læt öðrum um að meta hvort þetta sé sanngjörn lýsing á því sem gerðist hér á þessum árum þessara áfalla. Ég vil þó fá að nefna hér í þessu samhengi hlutanna, því að fjárlög og rekstur ríkisins eru ekkert nema samhengi hlutanna, að þrátt fyrir allt er staðreyndin sú að grunnrekstur ríkisins hefur verið jákvæður frá árinu 2023. Fyrir rúmu ári var jafnframt útlit fyrir að hægt yrði að ná hallalausum fjárlögum strax árið 2025 þótt slíkt krefðist vissulega styrkrar stjórnar í ríkisfjármálum. Hin meinta óstjórn, sem hæstv. forsætisráðherra og fleirum í stjórnarliði meiri hlutans hér á þinginu verður tíðrætt um, var því ekki meiri en svo. Ég myndi því halda, frú forseti, að ummæli hæstv. forsætisráðherra ættu því kannski að dæma sig fyllilega sjálf. En það sem er áhugavert varðandi þá umræðu sem við eigum hér í dag er sú staðreynd að hallalaus ríkissjóður er ekki fjarlægur draumur heldur þvert á móti innan seilingar stæði vilji ríkisstjórnarinnar til þess. Ekki væri úr vegi að stefna að afgangi af rekstri ríkisins strax á næsta ári en metnaður ríkisstjórnarinnar liggur hreinlega ekki þar. Ég mun fara nánar yfir einstök atriði þess efnis hér á eftir.
Mig langar þó að fá að enda þessa yfirferð varðandi hina meintu óráðsíu og óstjórn undanfarinna ára, eða þessar stóryrtu yfirlýsingar um óráðsíu annarra í fortíðinni, sem enginn getur þrætt fyrir að á sér fyrst og fremst stoð í neyðarviðbragði fyrir þjóðina — mér finnst það ekki bera vott um sanngjarna eða skynsamlega nálgun og samanburð í ríkisfjármálum. Ég leyfi mér því að velta þessu upp, frú forseti: Ef það var óráðsía að reka ríkissjóð með halla í gegnum heimsfaraldur og náttúruhamfarir, hvað má þá kalla reksturinn í dag, mögulega óðaóráðsíu? Ekki er neyðaraðstæðum fyrir að fara. Ef við förum aðeins í nokkur einstök atriði í þeim fjárlögum sem hér eru undir þá styðst ég talsvert við nefndarálit 3. minni hluta, eða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd, sem er með miklum ágætum. Þar er farið heilt yfir breiðu strokurnar, sem skipta máli fyrir samhengið, og ekki síður kannski smáatriðin sem eru samt ógnarstór í þessu samhengi öllu saman.
Það vekur athygli varðandi það sem ég var að ræða áðan, um þetta samhengi hlutanna, að í áliti meiri hluta fjárlaganefndar er í engu minnst á áhrif þeirra áfalla sem dunið hafa yfir undanfarin ár, ekki einu orði. Beinn kostnaður ríkissjóðs af heimsfaraldri kórónuveiru var áætlaður 194,5 milljarðar kr. og kom það fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar um útgjöld ríkissjóðs vegna efnahagsáfalla og náttúruvár síðastliðinn áratug. Líkt og bent var á í svari ráðuneytisins gefa þær tölur þó ekki skýra mynd af heildarkostnaði þar sem þær ná aðeins til beinna útgjalda og taka ekki til óbeinna áhrifa á ríkisfjármálin, svo sem samdráttar í efnahagsumsvifum eða kostnaðar sem kann að falla á sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Í heildina var beinn kostnaður ríkissjóðs vegna efnahagsáfalla og náttúruvár síðastliðinn áratug tæpir 338 milljarðar kr. og þá fyrst og fremst á árunum 2019–2024. Ég þarf vart að minna á að það eru akkúrat árin þar sem síðasta ríkisstjórn var við völd og er hér ítrekað brigslað um óráðsíu í ríkisfjármálum. Við skulum því hafa þetta allt saman í huga á meðan við höldum áfram yfirferð okkar um fjárlög núverandi ríkisstjórnar sem er ekki að glíma við neina slíka áfallatíma, og við skulum að sjálfsögðu öll vona að tímarnir haldi áfram að vera áfallalausir. En þetta samhengi skiptir máli, frú forseti. Það er ekki alltaf alveg sanngjarnt að bera saman epli og epli í þessu, ekki ef svona risastór þáttur er tekinn út fyrir sviga hvað varðar opinber útgjöld síðustu ára.
Þrátt fyrir þetta, nánar tiltekið á umræddu tímabili, 2015–2024, á síðasta áratug eða svo, var umtalsverður hagvöxtur, þrátt fyrir þetta bakslag vegna kórónuveirufaraldurs, eða um 3,1% að meðaltali. Ef aftur á móti er litið til hagvaxtar á mann er meðaltalið mun lægra eða um 1,2% en fólksfjölgun á tímabilinu var talsverð eða að meðaltali um 1,9% á ári. Þetta skiptir máli. Til samanburðar hefur annars staðar á Norðurlöndunum á sama tímabili einungis verið meiri hagvöxtur á mann í Danmörku. Þar var hann að meðaltali um 1,9% en hagvöxtur annarra Norðurlanda á mann var lægri eða um og undir 1%. Hagvöxtur á mann hefur verið með ágætum síðastliðinn áratug á Íslandi eða um 1,2% en þess má geta að ótrúlegur árangur danska lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk hefur haft afgerandi áhrif á góðan árangur dansks efnahagslífs á þessu tímabili.
Þrátt fyrir öll þau áföll sem síðasta ríkisstjórn glímdi við skilaði hún engu að síður ríkissjóði af sér með litlum halla og með hallalausan ríkisrekstur í sjónmáli, þótt slíkar fyrirætlanir krefðust áframhaldandi styrkrar efnahagsstjórnar. Þar að auki tókst að halda skuldasöfnun í skefjum en skuldir ríkissjóðs eru lágar í alþjóðlegum samanburði. Gott lánshæfismat ríkissjóðs endurspeglar það meðal annars. Það er því ljóst að hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við góðu búi enda virðist meiri hluti fjárlaganefndar taka undir þau sjónarmið í nefndaráliti sínu þrátt fyrir að ýmsir stjórnarliðar haldi öðru fram svona þegar kappið segir svo. Það muna kannski einhverjir að fyrir nánast sléttu ári, að verða, var neyðarkall sent úr stjórnarmyndunarviðræðunum því að þar var reynt að bera það á borð að búið væri í miklu verri málum en trúað var svo að grípa þyrfti til alls konar aðgerða eða endurskoðunar alls konar plana; mögulega var þarna lagður dregillinn að ákveðinni réttlætisgöngu t.d. hvað það varðar að skattahækkanir, sem í kosningabaráttunni var lofað að yrðu ekki, þyrftu að raungerast. Ég vona að ég þurfi ekki að taka það fram, en ég ætla samt að taka það fram, að það kom síðan ekki mikið á óvart og maður áttaði sig ekki á því fyrr en seinna að þetta var eitt af þessum fyrstu „PR“-útspilum hæstv. ríkisstjórnar. Þetta var einn fyrsti frasinn sem var látinn flakka strax í ríkisstjórnarviðræðunum þar sem sent var út neyðarkall um hið vonda bú sem verið væri að taka við. Ég held að það geti enginn fullyrt nú að það standist nokkra sanngjarna skoðun heldur var hér einungis, eins og ég segi og giska á, verið að slá ryki í augu fólks og kannski verið að búa sér til eilítinn afsökunarhjúp fyrir þeim aðgerðum sem síðan fylgdu í kjölfarið. Ég vil einnig benda á að ríkissjóður á að auki miklar eignir sem hægt væri að losa um án þess að ógna þjóðaröryggi eða menningararfi. Það er dýrmætt til að lækka skuldir og auka verðmætasköpun í landinu. Það eru mikil tækifæri í því.
Lífeyrissjóðskerfið okkar er í allra fremstu röð. Miðað við tölur frá Seðlabanka Íslands frá Eurostat eru skuldir heimilanna sem hlutfall af ráðstöfunartekjum lægstar á Íslandi af Norðurlöndunum. Það kemur fram í nefndaráliti að fram hafi komið á fundi fjárlaganefndar með fulltrúum Hagstofunnar að vanskil heimilanna hafi aldrei verið minni. Lokapunkturinn í þessari yfirferð, um samanburð og samhengi varðandi rekstur ríkisins og fjárlög síðustu ára, og það verður að fá að minnast á það, er að síðustu ár hefur almenna reglan verið sú að afkoma ríkissjóðs hefur verið betri þegar upp er staðið en fjárlög höfðu gert ráð fyrir. Það sama er uppi á teningnum þegar kemur að afkomu ársins 2025. Samkvæmt upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu í haust var gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs yrði neikvæð um 19 milljarða en ekki 63 milljarða eins og fjárlög gerðu ráð fyrir. Áætlanir fyrir árið hafa versnað síðan og munar nú 7 milljörðum kr. eftir að tekið er tillit til einskiptiskostnaðar vegna uppgjörs ÍL-sjóðs. Hver sem niðurstaðan verður á endanum er ljóst að halli á rekstri ríkissjóðs í ár er lítill. Því hefði hæglega mátt skila hallalausum rekstri á næsta ári. Ríkisstjórnin kaus þess í stað að gera það ekki heldur frekar að fara leið þess sem hækkar skatta, eykur útgjöld og bætir í hallann sem stefnir nú í rúma 25 milljarða, þ.e. ef um margt veikar tekjuforsendur frumvarpsins standast. Það má líka nefna að áætlanir ríkisstjórnarinnar gera þess utan ekki ráð fyrir neinni niðurgreiðslu skulda, sem er miður. Það er áætlað, frú forseti, að ríkisútgjöld aukist um 143 milljarða kr. frá fjárlögum ársins 2025. Til samanburðar var útgjaldaaukningin á milli ára á síðasta ári 76 milljarðar, og það verður að fá að taka fram samhengis vegna, frú forseti, að það ár var kosningaár, mjög sérkennilegt kosningaár meira að segja, eftir að þáverandi ríkisstjórn sprakk. Samt sem áður tókst mönnum í þeim aðstæðum að koma frá sér fjárlögum með ekki meiri útgjaldaauka, þótt á kosningaári væri. Núna þegar ekki er nokkur ástæða til annars en að skila hallalausum fjárlögum, núna eftir að hafa tekið við góðu búi á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar, sem lofaði í kosningum fyrir ekki meira en ári síðan að hækka ekki skatta, eru útgjöldin aukin um 143 milljarða.
Mig langar að fá að velta því upp, frú forseti, gagnvart þeim sem fylgjast með þessari umræðu hér, hvað kemur upp í hugann á fólki ef það reynir að gera sér í hugarlund hvað muni batna á Íslandi við þessa 143 milljarða kr. Hvað kemur upp í huga fólks? Hvað verður betra á næsta ári en í ár? Ég ætla að leyfa mér að giska á að auðvitað verði hægt að tína til einstök atriði sem er vonandi gott og vel. Ég ætla þó líka að leyfa mér að giska á að heilt yfir muni mörgum ekki detta neitt í hug. Ég óttast, frú forseti, og það er eitthvað sem skrifast ekki bara á þessa hæstv. ríkisstjórn heldur er þetta kannski einhvers konar lenska sem hefur fengið að þróast hér hjá okkur í of langan tíma, að við séum búin að búa okkur til kerfi sem svo auðvelt er að smyrja ofan á að milljónirnar, eða tíu milljónirnar, hundruð milljóna og milljarðar, hverfi; leggist eins og hvert áleggið ofan á annað í ágætissamloku. Það fær samt enginn að borða þessa samloku, hún bara er þarna einhvers staðar. Það veit enginn almennilega af henni, eða jú, fólk veit kannski af henni en hún er aldrei borin á borð fyrir neinn. Þetta er held ég eitthvað sem við ættum öll og allur þingheimur hér að reyna að horfa aðeins meira kalt á. Það er eitt að auka útgjöld um 143 milljarða og það er annað að það sé samt örlítið á reiki í hugum fólks hvað batni á Íslandi við það, en ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það verði niðurstaðan.
Mig langar að fá að nefna það aftur, frú forseti, í þessu samhengi: Ef það stendur ekki til núna að skila hallalausum fjárlögum og greiða niður skuldir, draga úr skattbyrði — ef ekki núna, hvenær þá? Af sama fólki og kallar ríkisútgjöld áfallaáranna óráðsíu, hvað kallast þá áherslurnar í þessu fjárlagafrumvarpi í samanburði við það? Ég leyfi mér að skilja þá spurningu eftir.
Mig langar líka aðeins að gera að umtalsefni það sem heitir stöðugleikareglan sem að mínu viti er mikið ónefni þótt ég gefi mér að fólk sé að meina vel. Ég held þó að ekkert sé verra en hlutir sem hljóma svo vel að fólk hættir að horfa á þá gagnrýnum augum. Þá geta þeir fljótt orðið meira til ógagns en gagns. Stöðugleikareglan, frú forseti, er í grunninn ekkert annað en mjög veik útgjaldaregla, langar mig að segja, eða bara skattahækkunarregla. Reglan þýðir í raun að það megi alltaf auka útgjöld svo lengi sem skattar eru hækkaðir á móti. Það er stöðugleiki. Í rauninni, kannski með ákveðnum fyrirvara og að sjálfsögðu ákveðinni einföldun, en bara til þess að fólk skilji almennilega hvað er hér undir, kemur hver hæstv. ráðherrann hér á fætur öðrum, margir stjórnarliðar, sem valda okkur í stjórnarandstöðunni áhyggjum af þessari þróun. Af hverju er verið að stíga þessi skref eins og fjárlagafrumvarpið ber svo greinilega með sér en ekki af þeirri skynsemi sem einhvern veginn blasir við? Þá er oftar en ekki sagt: Stöðugleikareglan heldur. Eins og þar sé einhvers konar allsherjarsyndaaflausn. Gott og vel. Er þetta allsherjarsyndaaflausn? Það eru eflaust margir sem halda það en það er nákvæmlega sá punktur sem ég óttast mest varðandi þessa reglu og hvað hún kallast; það er kannski stöðugleiki í því að alltaf megi auka útgjöld svo lengi sem skattar eru auknir á móti. Það er kannski stöðugleiki í því en það getur líka verið stöðugleiki í algerlega ömurlegu samfélagi, það getur vissulega verið stöðugleiki þar. Stundum er talað um að það skipti ofboðslega miklu máli að hafa algjöran jöfnuð. Það er líka alveg hægt að hafa algjöran jöfnuð þar sem allir hafa það mjög vont. Það er auðvitað ekki það sem við viljum. Þetta er hins vegar það sem ég hef áhyggjur af með stöðugleikaregluna. Til að búa til mjög einfalt dæmi þá getum við samt ímyndað okkur einhverjar aðstæður þar sem skattar eru hækkaðir upp í 100% því það á að auka útgjöld svo ofboðslega mikið. Þá er hægt að auka einhverja skatta eða alla skattana, jafnvel um 100%. Einhverjir myndu kannski gagnrýna það að það ætti að taka 100% skatt af fólki eða fyrirtækjum. Þá væri samt hægt að snúa sér við og segja: Nei, stöðugleikareglan heldur. Þetta er eitthvað sem mér finnst að við ættum að horfa aðeins betur til fyrir utan að það eru ákveðnir útgjaldaliðir sem eru settir til hliðar við þessa svokölluðu stöðugleikareglu. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kaus gegn þessu máli á sínum tíma. Ég vona að ég hafi aðeins drepið á það af hverju í þessari ræðu. Ég meina það einlægt. Ég vona að við lítum gagnrýnum augum á það hvernig hægt er að nota eitthvert svona tól eða tæki eins og felst í þessari reglu til að slá ryki í augu fólks, því auðvitað er það ekki ákjósanleg staða að skattheimta fari upp úr öllu valdi bara til að réttlæta útgjöld, en það er hægt að kalla það stöðugleika. Við förum fljótt út í skurð með það. Ég vona að sem flestir sjái það.
Frú forseti, aðeins að hagræðingum. Ríkisstjórnin hefur nefnilega lýst yfir háleitum markmiðum um hagræðingu í ríkisrekstri og þess er skemmst að minnast — talandi um fleiri „PR“-móment ríkisstjórnarinnar, þá held ég að strax í byrjun janúar hafi verið leitað til almennings eftir tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri. Mikið hljómaði þetta vel. Ég verð að segja að ég var hrifin af þessari nálgun. Það verður þó því miður að viðurkennast að núna, tæpu ári seinna, er uppskeran heldur rýr. Niðurstaðan er sú að boðaðar hagræðingaraðgerðir nema aðeins 0,9% af útgjöldum ríkissjóðs á árinu 2026 og er hluti aðgerðarinnar að fresta verkefnum og tæma varasjóði ráðuneyta sem varla getur talist til raunverulegrar hagræðingar. Ég verð að fá að segja, frú forseti, að við ættum kannski að merkja þetta sem frasaflæði nr. 2 hjá ríkisstjórninni. Þeir urðu miklu fleiri þegar leið á árið en strax þarna í byrjun árs var blásið til enn eins blaðamannafundarins þar sem tekið var á móti hagræðingaraðgerðum og það var stofnaður hópur, mikið húllumhæ. Niðurstaðan er sem sagt þessi.
Ég vil ítreka, frú forseti, það hefði verið hægt að samþykkja hallalaus fjárlög fyrir árið 2026, greiða niður skuldir og lækka skatta. Því miður er það ekki stefna ríkisstjórnarinnar sem kýs heldur að bæta í útgjöldin og velta vandamálunum yfir á komandi kynslóðir því eins og við vitum eru aukin útgjöld í dag skattar á morgun og hinn og hinn og hinn. Talandi um skatta — við munum fara betur yfir þá hlið málsins þegar við tökum bandormana svokölluðu til umfjöllunar. Auðvitað er bagaleg sú staða sem hefur þróast að við séum komin svona langt inn í fjárlagaumræðuna án þess að eiginlegt nefndarálit meiri hluta um t.d. fyrsta bandorminn sé komið fram, þar sem þetta hangir auðvitað saman, þ.e. hvernig þú færð tekjurnar til að eyða í útgjöldin.
Áður en sú umræða hefst, hvort sem það er á morgun eða í næstu viku, þá er það auðvitað kýrskýrt að þrátt fyrir ítrekuð loforð — mjög skýr og ítrekuð loforð, um að skattar verði ekki hækkaðir á almenning, á vinnandi fólk eða á lítil og meðalstór fyrirtæki, eða hvað svo sem það var kallað — leggur ríkisstjórnin nú til verulegar skattahækkanir, ýmist á almenning eða fyrirtæki í landinu. Ég verð að segja, frú forseti, og ætla að vera einlæg: Það kemur mér eiginlega á óvart hversu miklar skattahækkanir á að ráðast í í þessum fyrstu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar, sem samanstendur af þremur flokkum. Einn flokkanna hefur þó alla vega á tyllidögum þóst vera einhvers konar flokkur sem veit og skilur að skattahækkanir eru ekki það sem auðgar samfélagið okkar. Ég verð því að segja að ég er einlæglega hissa á að skattahækkanirnar séu svona umfangsmiklar.
Ég held, frú forseti, þar sem ég er í miðju hóstakasti sem ég virðist ekki komast út úr, að ég láti þetta duga í bili og bæti síðan bara í varðandi skattana og þetta heildarsamhengi allt í umræðu um bandormana hér á næstu dögum. Lokaorðin, frú forseti, meina ég einlægt: Fyrstu fjárlög þessarar ríkisstjórnar eru gríðarleg vonbrigði. Það hefði verið svo auðvelt að stíga önnur og miklu farsælli skref fyrir framtíðina og samfélagið allt hér og nú, bæði í nánustu framtíð og til framtíðar almennt. Þetta eru því mikil vonbrigði en ég læt þetta duga.