157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:07]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Við ræðum hér fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og eins og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir minntist á í sinni góðu ræðu þá eru hér ótal skatta- og gjaldahækkanir og ýmis nýyrði yfir slíkar hækkanir. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að fyrir kosningar ræddu sérstaklega tveir flokkar sem eru í ríkisstjórninni, Samfylking og Viðreisn, um að hækka ekki skatta á almenning. Í þessu fjárlagafrumvarpi er þó einmitt að finna töluvert margar skattahækkanir á almenning, eða alla vega það fólk sem ég held að fólk almennt skilgreini sem almenning. Allir sem lenda í skattahækkunum finna fyrir þeim. Fólk sem er búið að leggja á sig að vinna langan vinnudag, leggja á sig að skapa eitthvað nýtt, taka áhættu, mögulega hagnast á því, finnur fyrir því að þá sækir ríkið fram og ákveður að fara með krumluna ofan í vasa þess. Þetta er letjandi. Þetta er letjandi fyrir alla og dregur úr því að fólk taki áhættu, reyni að skapa verðmæti og auki þannig auðvitað samkeppnishæfni sjálfs síns og landsins alls. Við sjáum það t.d. í sjávarútveginum, sem er sú atvinnugrein sem hefur náð alveg gríðarlegum árangri á ekki svo mörgum árum. Hér áður fyrr var stór hluti aflans ekki nýttur. Flökin voru tekin og mörgu öðru hent, kannski var lifrin og annað slíkt hirt, en núna er nánast hvert gramm fisksins nýtt þannig að hér hefur orðið mikil verðmætasköpun. Ef fyrirtæki fá ekki að njóta þess að hagnast og geta nýtt fjármuni í að taka áhættu í að skapa eitthvað nýtt þá er það svolítið eins og lamandi hönd á atvinnulífið. Þess vegna mætti segja að skattahækkanir séu einhvers konar mara á atvinnulífinu og þrýsti súrefni og lofti úr því. Um leið og þetta gerist, ef við ímyndum okkur að tekjur allrar þjóðarinnar séu ákveðin kaka, þá minnkar sú kaka, sneiðunum fækkar eða hver sneið minnkar. Það er ekki gott fyrir ríkið og það er ekki gott fyrir almenning. Það er því að ákveðnu leyti óskiljanlegt að menn ætli í aðgerðir sem geta til skamms tíma mögulega sýnst góðar en reynslan og langflestar hagfræðikenningar sýna okkur að séu ekki góðar.

Það var kannski ákveðin leið fyrir flokkana, Samfylkingu og Viðreisn, að auglýsa fyrir kosningar að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning. Þá voru það einhverjir aðrir sem áttu að taka skattahækkanirnar. Ég held að flestir sem eru að fylgjast með, og flestir Íslendingar telja sig til almennings, hafi tekið þessi loforð trúanleg og hafi haldið að skattahækkanirnar ættu ekki við þá. Annað hefur nú komið á daginn. Það er kannski bara ágætt að skoða þessar skattahækkanir sem eru í þessum plöggum, í fjárlagafrumvarpinu, og eru tæpir 30 milljarðar í skattahækkanir. Kannski er það fyrsta sem ber að nefna það að það er verið að afnema samsköttun hjóna. Þetta er alvarlegt mál því að hér er alls konar fólk undir. Segjum að makinn sé ófær á vinnumarkaði, geti ekki unnið, þá kemur það hart niður á þeim að makinn sé í námi og öðru slíku eða tímabundið með nokkur lítil börn á heimilinu. Þá er verið að taka hér af þessu fólki svokallaða samsköttun sem það gat áður nýtt sér. Þetta getur munað allt að því 425.000 á ári sem er mikill peningur fyrir fólk og þetta á sérstaklega við um ungt fólk sem er að reyna að koma sér upp húsnæði og koma sér upp eignum og reyna að borga inn á höfuðstól lána. Þetta er því alvarlegt mál og þegar þetta var kynnt var talað um að þetta væru bara örfáar fjölskyldur, örfáir einstaklingar sem þetta myndi lenda á en hér erum við hins vegar að tala um 6% heimila. Það voru 6% sem nýttu sér þessa samsköttun og það eru ekki örfáir einstaklingar. Þetta fólk mun þurfa að bera þessar byrðar. Svo kemur meira, þ.e. að ríkisstjórnin ætlar að hækka krónutölugjöldin um 3,7%. Hér hækka ýmsar neysluvörur sem almenningur notar. Sumt af því er kannski óhollt eins og áfengi, tóbak og nikótín, en fólk notar þetta samt og ótrúlega margir í íslensku samfélagi eru háðir nikótíni og þegar þessi skattur leggst á þessar vörur hækkar náttúrlega verðið. Eldsneyti hækkar, útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og fleiri vöruflokka. Fyrir þennan hóp fólks er þetta í raun ákveðinn dropi eða korn sem fyllir mælinn. Þetta er kannski ekkert stórt í hvert sinn sem fólk fer og kaupir sér nikótín eða áfengi eða nær í eldsneyti eða borgar útvarpsgjaldið en safnast þegar saman kemur. Í því ástandi sem er að myndast núna í íslensku samfélagi, að hagkerfið er að kólna mjög hratt og atvinnuleysi er að aukast, þá sjáum við það að eftir nokkra mánuði gæti atvinnuleysi verið orðið töluvert meira og þá skiptir hver króna máli.

Bílar og farartæki eru eitt af því sem ríkisstjórnin ætlar með handafli að reyna að stýra kaupum fólks á með einhverjum hætti. Það á að reyna að ná 7,5 milljörðum inn í auknum vörugjöldum á ökutæki. Fólk er þó ekki kjánar og þeir sem höfðu hug á því að kaupa bíla á næstu misserum eru búnir að fjárfesta í bílum nú þegar þannig að ríkið mun að stóru leyti verða af þessum tekjum. Fólk er búið að hamstra bíla og það sem ég verð að minnast á hér líka eru önnur farartæki, það eru t.d. fjórhjól sem bændur nota. Það koma auka 40% vörugjöld ofan á þau. Það er náttúrlega enn einn landsbyggðarskatturinn sem kemur fast niður á bændum og öðrum þeim sem þurfa að nota þessi farartæki því að fjórhjól og sexhjól eru nauðsynleg í ýmisleg verkefni um land allt. Ekki má heldur gleyma mótorkrosshjólum sem koma til með að fá aukin vörugjöld á sig. Það er ákveðinn hópur ungra íþróttamanna sem stundar þá íþrótt og þarf þá að bera þann skatt, eða foreldrar þeirra. Þetta kemur til með að bitna á landsbyggðarfólki að mörgu leyti, eins og ég sagði áðan, vegna þess að staðsetning fólks á landinu er þess eðlis að það þarf að nota bifreiðar. Í þéttbýli er möguleiki á almenningssamgöngum, þó að þær séu kannski ekki góðar; möguleikinn er fyrir hendi. Þó að það sé kannski hollt að skokka langar vegalengdir eru menn ekki skokkandi einhverja 10–20 km sem landsbyggðarfólk þarf oft að ferðast á milli þegar það fer af bæ. Bílaleigur munu auðvitað þurfa að borga þetta kílómetragjald og kílómetragjaldið mun hækka verð á bílaleigubílum. Það er alveg ljóst. Nú í fyrradag komu þær upplýsingar frá Vinnumálastofnun að 38 einstaklingum hafi verið sagt upp í ferðaþjónustunni þann daginn. Ég nefni þetta vegna þess að bílaleigur tengjast ferðaþjónustunni sterkum böndum og því dýrari sem bílarnir verða á bílaleigum því ólíklegra er að ferðamenn komi til lands þar sem bílarnir eru dýrir því að við erum í samkeppni við önnur lönd um norræna upplifun, Noreg og Grænland og fleiri lönd, Finnland. Þessi hækkun á kílómetragjaldi og vörugjöldum mun hækka verð á bílaleigubílum. Að ætla það, eins og hæstv. forsætisráðherra hefur sagt, að bílaleigurnar verði bara að koma með í þessa vegferð og að rafvæða bílaflotann sinn, þá er það nú bara þannig að við stjórnum ekki neyslu ferðamannanna og innviðir á Íslandi eru ekki alveg tilbúnir í það að bílafloti ferðamanna sem koma hingað sé allur rafvæddur. Það er meiri óvissa sem fylgir því að að keyra á rafmagnsbíl í hvaða landi sem er. Ég held að öllum sem fylgjast með þessari útsendingu þætti öruggara að taka jarðefnaeldsneyti á bíl í einhverju ríki erlendis þar sem þyrfti að leigja bíl frekar en rafmagnsbíl, vitandi ekki nákvæmlega hvar hleðslustöðvar eru og hvort það sé aðgengi að þeim við þá gististaði sem fólk ætlar að nýta sér. Þegar maður er í ákveðinni óvissu við að keyra á nýjum stað vill maður ekki bæta annarri óvissu við, að keyra um á rafbíl með tilheyrandi hleðslukvíða.

Ég held að ríkisstjórnin hafi farið ansi bratt af stað hér og fyrirsjáanleiki bílaleiganna og annarra er afar lítill í þessu máli. Við vitum að staða ferðaþjónustunnar hefur versnað töluvert bara á síðustu misserum, á stuttum tíma, og hér er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að tefla í tvísýnu einu af fjöreggjum þjóðarinnar, sem ferðaþjónustan er. Það er verið að hækka jöfnunargjald á raforku og það þýðir að raforkuverð mun hækka í öllum landshlutum. Þetta mun sérstaklega bitna á fyrirtækjum og heimilum sem þurfa mikið að nota raforku. Það er aðeins misjafnt eftir því hvað er verið að gera í fyrirtækjunum. Sum eru raforkufrek og þau munu þá þurfa að borga meira. Hér er svo einn skattur enn. Það er bæting í erfðafjárskatt þar sem skattstofn kemur til með að hækka ævintýralega í sumum tilfellum. Þetta á sérstaklega við í þeim tilfellum þar sem við erum að tala um bújarðir sem hafa mögulega hækkað í verði eftir einhvern tíma. Bóndi er að yrkja jörð sína en hefur samhliða því aukið verðmæti jarðarinnar með einhvers konar aðgerðum í einhvers konar vinnu og síðan ef ættingjar bóndans vilja taka við því búi þá geta þeir ekki tekið við búinu á einhverju eðlilegu verði þegar búið flyst á milli kynslóða heldur verður markaðsvirði notað. Því miður verður verðið örugglega í mjög mörgum tilfellum of hátt fyrir fólk að taka við vegna þess að það þarf að borga 22% skatt af markaðsvirði, sem geta verið margar milljónir. Það eru ekki margir sem geta tekið við jörðum og rifið milljónir eða tugi milljóna upp úr vasanum. Sama á líka við um fyrirtæki, lítil fyrirtæki sem einhver fjölskyldan hefur stofnað, að þar verður markaðsvirði látið ráða. Það er sem sagt þaðan sem á að sækja peningana. Fyrirtæki sem hefur kannski gengið ágætlega, hefur aukið verðmæti sitt og veruleg þekking myndast innan fjölskyldunnar til að halda áfram að reka fyrirtækið — það verður ekki hægt vegna þess að það þarf að greiða 22% af markaðsvirði fyrirtækisins þegar það gengur á milli kynslóða. Þetta er í raun ósvífið, að við leyfum ekki fólki sem hefur stundað búskap eða stofnað lítið fyrirtæki að taka það upp á næsta stig.

Mikið hefur verið talað um sjávarútveginn. Ég talaði hér um hann áðan, hvernig verðmæti aflans hefur verið aukið verulega. Menn nefna oft fyrirtækið Kerecis sem notar fiskroð á sár, einstaklega sniðug lausn og mun betri en þær sem voru fyrir. Þá notuðu menn líknarbelgi sem eru þá í kringum fóstur en hér erum við komin með afurð, fiskroð, sem var bara almennt hent en er orðin verulega dýr afurð sem skilaði okkur reyndar fyrsta einhyrningnum í sölu fyrirtækisins Kerecis til Coloplast. Þarna er því ákveðið hugvit og þarna voru til peningar. Þetta er dæmi um það hvernig ákveðinn hagnaður hefur nýst í mörg ár til að byggja upp fyrirtæki. Þetta var ekki þannig að einhver flakaði fisk og tók roðið af honum og skellti því á sár og það lagaðist allt. Þetta tók mörg ár í þróun og mörg ár í rannsóknir. Á meðan þarf að borga fullt af sérfræðingum laun og hagnaður fyrirtækisins er enginn. Fyrirtækið brennir og brennir peningum til að komast að einhverju í lokin sem kemur til með að skila arðinum. Þetta virðist hæstv. ríkisstjórn ekki skilja og Kerecis er gott dæmi um það hvernig verðlaus vara getur orðið gríðarlega verðmæt. Sjávarútvegurinn hefur fært okkur mörg önnur góð fyrirtæki.

Tíminn er nú að renna frá mér en ég verð líka, hér í lokin, að minnast á framhaldsskólann. Í fjárlögunum birtist örlítil hækkun til framhaldsskólanna en hún dugar rétt svo fyrir launahækkunum og verðlagsþróun þannig að þeim verður áfram haldið í ákveðinni spennitreyju. Og við vitum hvernig menntakerfið er. Við erum að skila nemendum út í lífið eftir grunnskólann, ekki öllum á góðum stað. Það hefur sýnt sig í skýrslum OECD að menntun útskýrir um helming hagvaxtar. Eitt ár af góðri menntun eykur árstekjur um 9%. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera hvað þessa menntun varðar? Við vitum að nemendahópar eru að stækka og verða fjölbreyttari. Ríkisstjórnin er meira að segja með frumvarp sem reynir að eyða út einkennum hvers framhaldsskóla og gera þá alla eins sem veldur því að það verður kostnaðarsamara að reka skólana. Sá kostnaður mun ekki verða dekkaður með nýju fjármagni inn í framhaldsskólana heldur þarf enn að þrengja að og skera meira inn að beini. Ég sé því ekki margt jákvætt í þessu frumvarpi. Það er ekkert flókin hagfræði og ekkert flókin vísindi að einhverjir sem taka áhættu, leggja á sig, kaupa einhver grunnefni og búa til ný verðmæti, eru líklegri til að gera það aftur heldur en að ríkið sé sjálft að gera það. Ég held að sagan og vísindin hafi margsannað þetta. En hér eiga bandormar eftir að koma til umfjöllunar þar sem hægt verður að taka frekar til máls og ætla ég að stöðva að sinni.