fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég ætla að bæta örlítið við það sem ég hafði áður sagt, fara yfir stóru strokurnar í þessu máli hvað varðar fjárlögin fyrir næsta ár. Lítum á þetta í stóra samhenginu. Stjórnmálamennirnir, sem núna eru í ríkisstjórn landsins, gáfu út fyrir síðustu kosningar loforð um að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning, eins og það var orðað. Fjölmargir hv. þingmenn hafa verið að reyna að greina hverjir þetta væru, þessi almenningur, vegna þess að skattarnir bitna vissulega á fjölmörgum. Hv. þingmenn hafa farið yfir þessar skattahækkanir hér og ég hef einnig gert það, hver þessi almenningur er.
Varðandi þessi fjárlög, frú forseti, þá eru það tvær setningar sem lýsa þessum fjárlögum best. Í fyrsta lagi: Ríkisstjórninni er fyrirmunað að draga úr stjórnlausum útgjöldum ríkisins og þau vaxa nú sem aldrei fyrr. Þetta er fyrri setningin. Það er ekki verið að draga úr útgjöldum ríkissjóðs, þau vaxa nú meir en fyrr. Í öðru lagi: Eina úrræði ríkisstjórnarinnar er að hækka skatta á fólk og fyrirtæki í landinu. Þetta er einkenni þessarar ríkisstjórnar; að geta ekki dregið úr útgjöldum og lausnin er að hækka skatta.
Einhvern tímann hefur maður heyrt þetta áður. Þetta er gamalkunnugt stef þegar vinstri flokkar eru við völd og svo sannarlega, frú forseti, er ekki unnt að segja annað en að þessi stjórn hafi sýnt öll merki slíkrar stjórnar, vinstri stjórnar. „Verkin sýna merkin“, eins og stundum er sagt. Kerfið vex og útgjöld stóraukast. Lausnin er að skattleggja þegnana. Hv. þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa eitt áhugamál framar öðrum. Eitt áhugamál: Það er að hugsa upp nýja skatta eða hækka þá sem fyrir eru.
Ég hlustaði einmitt á hlaðvarp í gær eða fyrradag þar sem var a.m.k. einn hv. þingmaður stjórnarinnar og einhverjir viðmælendur. Þar var verið að gera grín að því hvaða skatta mætti hækka og hvaða nýju skatta væri hægt að finna upp. Þetta þótti mjög fyndið og hugmyndaflugið sem þarna kom fram sýndi mér að þetta er áhugamál þingmanna stjórnarflokkanna framar öðrum; að finna upp einhverja skatta, finna einhverjar glufur, finna einhverja atvinnugrein, finna eitthvert fólk sem hægt væri að skattleggja. Þessir hv. þingmenn halda að þeirra hlutverk hér í ríkisstjórninni sé að ná í sem mesta peninga af almenningi og fyrirtækjum í landinu. Það er ekki hægt að hlæja að þessu, þetta er grátlegt. Að menn séu staddir í ríkisstjórn með það helsta markmið að upphugsa einhverjar leiðir til að skattleggja fólkið í landinu.
Ég segi aftur: Stjórnvöld geta ekki endalaust sótt meira fé í veski almennings í landinu. Skattgreiðendur eru ekki óþrjótandi auðlind. Skuldir ríkissjóðs í dag eru skattar morgundagsins. Útgjaldavöxturinn kallar á að það þurfi að skattleggja. Vinstri ríkisstjórnir munu skattleggja meira ef þær auka á skuldir ríkissjóðs. Þeim er fyrirmunað, frú forseti, að taka á útgjaldavexti ríkisins. Hann er stjórnlaus. Það var útgjaldavöxtur áður. Vegna hvers? Vegna Covid. Vegna náttúruhamfara. Þau taka við og segja: Ja, það er útgjaldavöxtur og við höldum því bara áfram.
Frú forseti. Brýnt er að horfið verði af þessari braut, það er brýnt. Ef þessi ríkisstjórn getur það ekki þá verða einhverjir aðrir að taka við. Ef þessi ríkisstjórn getur það ekki verða aðrir að taka við því kefli. Almenningur og fyrirtæki í landinu geta ekki borgað endalaust vaxtahækkanir ríkissjóðs ríkisstjórnarinnar. Þau geta það ekki. 25 milljarðar í aukna skatta. Ég heyrði 27 og einhver sagði 30. Tölurnar hækka dag frá degi, frú forseti. Ég hélt að það væru 25 milljarðar, kannski er það orðið hærra. Það eru svokallaðir bandormar, frumvörp ríkisstjórnarinnar, í efnahags- og viðskiptanefnd og það er kannski ekki hægt að halda utan um hvernig þau mál þróast þar. En ef skattaaukningin er 25 milljarðar, nýir skattar, þá er það fullnóg, þótt það sé ekki meira en það.
Lækkun á skuldum ríkisins er nauðsynleg til að fé sem annars rynni til vaxtagreiðslna fái farveg í mikilvæg verkefni í heilbrigðiskerfinu, í menntakerfinu, í löggæsluna, í annað sem bráðnauðsynlegt er að ríkið geti sinnt. Skattahækkanir þessarar vinstri ríkisstjórnar, ásamt því að ekki er tekið á útgjaldavexti ríkisins, eru vísbending um að stjórnarflokkarnir átti sig ekki á samspilinu. Það er mergur málsins, frú forseti. Þeir átta sig ekki á samspili vaxtarskilyrða í atvinnulífinu og tekna ríkissjóðs. Það er mergur málsins. Það verður ekki skattlagt út í það óendanlega þó að þau í hæstv. ríkisstjórn hafi gaman af því og geti grínast með það á góðum stundum þar sem þau upphugsa nýja skatta og nýja hópa sem unnt er að skattleggja.
Vaxtagjöld ríkisins eru að verða stærsti einstaki útgjaldaliðurinn í ríkisfjármálunum. Það verður að ná böndum á þetta. Það verður að ná böndum á útgjaldavöxtinn. Það verður að ná böndum á halla ríkissjóðs. Það verður að fara að greiða niður ríkisskuldir þannig að í framhaldinu sé unnt að fara að stíga inn í umhverfi sem nú virðist vera ansi fjarlægt; að það sé unnt að lækka skatta til þess að atvinnulífið geti starfað á heilbrigðum grunni, fjárfest og sett fjármagn í nýsköpun og nýjungar og blómstrað öllum til hagsbóta og aukið þannig skatttekjurnar, ekki með því að það sé skattlagt í drep. Þetta er einföld hagfræði. Ég hugsa að hún sé kennd í fyrsta áfanga. Ég hef ekki setið í tímum í hagfræði en ég held að þetta hljóti að vera kennt og jafnvel í fyrstu kennslustundinni.