157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.

[13:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Það er rétt að taka undir með samþingmönnum úr Norðausturkjördæmi um það sem hefur komið fram hér. Það var mjög óvenjulegt sem gerðist hér í gær, eða á blaðamannafundi reyndar á miðvikudag held ég að hafi verið. Þetta er mjög sérstök atburðarás, sérstök tímalína. Það er sérstakt og óvenjulegt þegar skýrsluhöfundar finna sig knúna, eins og í þessari skýrslu sem snýr að Fjarðagöngum og Fjarðarheiðargöngum, til að koma fram og gagnrýna þessa tilhögun og benda á að þetta var ekki niðurstaða þeirrar skýrslu sem þeir höfðu skrifað. Það er vont í jafn viðkvæmum málum og við erum að fást við hér, sem snúast um grundvallarhagsmunamál eins og á Austurlandi í þessu tilviki, hvernig hefur verið farið með þetta mál. Ég held því að það sé full ástæða til þess að innviðaráðherra skýri sitt mál betur vegna þess að hann sagði í gær að hann hefði ekki (Forseti hringir.) kynnt sér skýrsluna sem allt málið byggðist á. Þetta er ótrúlegt (Forseti hringir.) og það er rétt að það komi eitthvað frá ráðherranum um þetta mál sem fyrst.