orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.
Virðulegur forseti. Hér er verið að tala um skýrslu sem kom út 24. nóvember síðastliðinn. Ég átti gríðarlega góðan fund með skrifstofustjóra samgöngumála í mínu ráðuneyti um þessa skýrslu. Ég las samantekt skýrslunnar frá bls. 55 og ég skora á allan þingheim að lesa hana. Í kafla 6.1, arðsemi, kemur fram að Fjarðarheiðargöng eru með núvirtan ábata mínus 38 milljarða. Fjarðagöng eru með mínus 23. Arðsemi er meiri af Mjóafjarðargöngum, eins og þeir kalla göngin í skýrslunni, sem eru Fjarðagöng. Þar er líka verið að fjalla um tengingu svæða og t.d. talað um að Fjarðarheiðargöng og Mjóafjarðargöng séu bylting saman. Í skýrslu frá 2023 frá sama háskóla er hins vegar sagt að Fjarðagöng yrðu byltingarkennd. Í kafla 6.4 er fjallað um að vissulega rjúfi Fjarðarheiðargöng vetrareinangrun o.s.frv. En það breytir því ekki (Forseti hringir.) að við metum þetta heildstætt.
Þegar ég tók við embætti 21. desember síðastliðinn fór ég strax að pæla í samgönguáætlun, höfum það alveg á hreinu. Það eru skýrslur til frá (Forseti hringir.) 2019 um Seyðisfjarðargöng sem ég er búinn lesa, og líka skýrsla sem er um jarðgöng á áætlun. Hún er 250 blaðsíður. (Forseti hringir.) Ég vona að þingmenn verði búnir að lesa þetta áður en við hefjum umræðu, vonandi í næstu viku, um samgönguáætlun.