157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.
Frú forseti. Í gær kom fram að hæstv. innviðaráðherra Eyjólfur Ármannsson væri staðgengill hæstv. mennta- og barnamálaráðherra. Mig langar að spyrja forseta: Hvenær varð hann staðgengill og liggur fyrir hvenær hæstv. mennta- og barnamálaráðherra snýr til baka?