orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.
Virðulegur forseti. Hér hefur réttilega verið bent á hæpnar fullyrðingar hæstv. ráðherra um fagleg vinnubrögð við vinnslu samgönguáætlunar og dregið fram að sú fullyrðing sé ekki hafin yfir vafa. Þá bregður svo við að hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar kemur hér upp og hvetur til þess að samgönguáætlun sé tekin hér til umræðu mitt í fjárlagavinnu þingsins sem hefur nokkra daga til stefnu og kemur þá kannski í ljós ástæðan fyrir þeim flumbrugangi sem varðar vinnubrögð við samgönguáætlun og þeim flýti sem menn hafa lagt áherslu á að leggja málið fram, að klára 1. umræðu undir þrýstingi fjárlagaumræðunnar. Þetta eru vinnubrögðin. Þetta er verkstjórnin í þessari svokölluðu verkríkisstjórn. Ég geld varhuga við því og bendi á þvílíkt gönuhlaup það væri að fara að ræða samgönguáætlun undir þeim þrýstingi sem hér er næstu daga.